Náttúrufræðingurinn - 1981, Side 10
mundsson hreiður í holu efst í lágum
klettum í Mikley. Árið eftir fann hann
þrjú hreiður, tvö i Mikley og eitt í
Álaugarey.
Eftir þetta bárust litlar fréttir af
staravarpi í Hornafirði þar til 1959, en
26. mars það ár fann skipsmaður á
Herðubreið starahreiður í Álaugarey
með 3 eggjum, sem hann færði Náttúru-
gripasafninu í Reykjavík. Þessi stara-
hjón hafa verpt óvenju snemma. Á
Bretlandseyjum byrjar starinn að verpa
um miðjan april en í Noregi i byrjun
maí. í Færeyjum eru starar stundum
sagðir verpa síðast i mars eða í byrjun
apríl, en venjulega þó frá því síðast i
apríl og fram í miðjan júlí (Witherby
o. fl. 1938, Salomonsen 1935, Haftorn
1971). Engar fréttir bárust af hreiður-
fundum árin 1960—1973 en 25. júní
1974 fann Boswall (1974) hreiður í
Álaugarey og sá 40 stara i hóp þann 19.
júní og 14 þann 25. júni.
Þótt heimildir um landnám starans í
Hornafirði séu ekki samfelldar má telja
nokkurn veginn öruggt, að starar hafi
verpt þar árlega síðan 1941 og ef til vill
eitthvað lengur. Benedikt Þorsteinsson,
sem búsettur er á Höfn, segir í bréfi til
min, dags. 26. 3. 1978, að stara hafi
fækkað mjög rnikið á síðustu árum.
Einnig segir hann að starinn verpi yfir-
leitt ekki í mannvirkjum, heldur nær
einungis úti i eyjunum.
Fagurhólsmýri 1950—1951
Vorið 1950 héldu starahjón sig á
Fagurhólsmýri i Öræfum og sáust þau
oft koma heim að bæjarhúsunum til að
ná sér í hænsnafjaðrir í hreiður. Þann
18. júní fann Hálfdán Björnsson hreiðr-
ið og var það i holu upp undir brún i 20
m háum klettum. Fjórir nærri fleygir
ungar voru i hreiðrinu. Stararnir hurfu
eftir að ungarnir urðu fleygir. Seint i
júni 1951 sá Hálfdán starahjón í Salt-
höfða á Fagurhólsmýri og áttu þau
hreiður í sprungu hátt uppi í klettunum
og heyrði hann greinilega i ungunum
þegar foreldrarnir færðu þeim fæðu.
Árið 1957 sá Hálfdán einn stara á
Svínafelli i Öræfum 3. — 7. júní en fann
ekkert hreiður. Óvíst er, hvort þetta
hefur verið varpfugl (Hálfdán Björns-
son 1976, spjaldskrá N. í.).
Eyjafjördur 1954— 1978
Vorið 1954 sá Kristján Geirmundsson
stara nokkrum sinnum á Akureyri og
fann siðar hreiður milli veggja í sumar-
bústað skammt frá Galtalæk rétt innan
við Akureyri. Stararnir komu upp 4
ungum og héldu þeir sig á Akureyri yfir
sumarið (spjaldskrá N. I.).
I maí 1978 verpti starapar i þakrennu
við Möðruvallastræti 9 á Akureyri.
Lokað var fyrir opið að hreiðrinu í fyrstu
viku júní og reyndu fuglarnir að komast
inn í nokkra daga, en hurfu síðan
17. —20. júni (Gunnlaugur Pétursson
munnl. uppl.)
í bréfi til mín, dags. 25. 3. 1978, segir
Jón Sigurjónsson á Akureyri að stari
hafi verpt í Ólafsfirði tvisvar sama árið,
sennilega 1960—1965. Tveir fuglar sá-
ust oft þá um veturinn i Ólafsfirði og
fannst hreiður um vorið í fiskhjalli, en
Vatnsrennsli eyðilagði það. Hitt hreiðrið
var ofan á torfvegg í fjárhúsi og var með
þrem eggjum þegar það fannst, en þá
voru fuglarnir búnir að yfirgefa það.
Jón sá eggin úr hreiðrunum og telur að
þau hafi verið staraegg.
Á Skipalóni í Hörgárdal verpti stari
árið 1962. Þar var á ferðinni aðeins einn
fugl og eggin því ófrjó, en hann verpti
152