Náttúrufræðingurinn - 1981, Síða 11
tvisvar (Snorri Pétursson munnl. uppl,
Ævar Petersen).
Samkvæmt bréfi frá Þorsteini Ing-
ólfssyni, Gröf í Öngulstaðahreppi, dags.
19. 2. 1978, verptu starar á Grund í
Eyjafirði 1973—1975. Þeir verptu öll
árin á sama stað, í þakrennu ofan við
eldhúsglugga, og komu ungum upp í öll
skiptin. Stari hefur hvorki fyrr né síðar
sést á Grund.
I bréfi frá Steingrími Þorsteinssyni,
Dalvík, dags. 15. 3. 1978, segist hann
hafa séð „fjóra staraunga, það illa
fleyga, að varla hafi þeir verið langt að
komnir“ á Dalvík fyrir mörgum árum.
Þó segist hann ekki hafa heyrt um varp
á Dalvík eða í nágrannabyggðum,
hvorki fyrr né síðar.
Reykjavík og nágrenni, frá 1960
Aður hefur verið skýrt frá því að mikil
flækingagengd haustin 1959 og 1961
hafi að öllum líkindum verið upphafið
að staravarpi í Reykjavík. Fyrir þann
tíma höfðu starar sést árlega í Reykjavík
og nágrenni, oftast þó aðeins fáir en
flestir um 40 (Agnar Ingólfsson og Arn-
þór Garðarsson 1955).
Veturna 1959—1960 og 1960—1961
bar mjög mikið á störum í Reykjavík.
Jón B. Sigurðsson sá t. d. 50 — 60 stara
þann 21. 10. 1959, a. m. k. 100 þann
2. 11., og 22. 11. sama ár sá hann
100—150 fugla í Skógræktarstöðinni i
Fossvogi.
Þann 7. 6. 1960 sá Þorsteinn Einars-
son íþróttafulitrúi starahjón og þrjá
unga að Laugarásvegi 47 og Jón B. Sig-
urðsson sá 12. 6. fullorðinn stara með
þrjá fleyga unga i Laugardal. Af þessu
má ætla að eitthvað af störum sem
komu haustið 1959 hafi verpt strax um
vorið. Mörg dæmi eru til um það að
fuglar verpi utan varpheimkynna sinna
eftir slikar flækingsgöngur, eitt slíkt
dæmi er vepjuvarpið í Kelduhverfi 1963
(Jón B. Sigurðsson 1967).
Veturinn 1960—1961 bar einnig
mikið á stara í Reykjavík og sá Kristján
Geirmundsson 209 stara ,,mest við
Laufásveg beggja megin Skothúsvegar“
á fuglatalningardag þann 29. 12. 1960.
Þann 28. 7. 1962 sá Arnþór Garðarsson 3
nýfleyga staraunga milli Nýjabæjar og
Bollagarða á Seltjarnarnesi. Þorsteinn
Einarsson fann starahreiður að Laufás-
vegi 9 Jrann 3. 5. 1963, en Jrað var fyrsta
hreiðrið sem fannst í Reykjavík. Þann
12. 7. 1964 fann hann hreiður að
Kambsvegi 20 og telur, eftir frásögn
húsráðanda og sinum eigin athugunum
um ferðir stara norður og suður yfir
Laugarásinn til og frá býlunum í Laug-
ardalnum, að starinn hafi fyrst farið að
verpa þar 1961.
Greinilegt er að störunum fjölgaði
mjög hægt i fyrstu. Veruleg aukning
virðist ekki verða fyrr en um og eftir
1965 og jókst staravarp í Reykjavík jafnt
og þétt frá því (spjaldskrá N. I., Þor-
steinn Einarsson skrifl. uppl.), auk Jaess
sem vetrarfuglum fjölgaði (6. mynd).
Eftir að störum fór að fjölga verulega
bar nokkuð á því að menn væru bitnir af
flóm, sem komu úr hreiðrum fuglanna.
Vegna Jressa hófst herferð gegn flónni
Jrar sem reynt var að koma í veg fyrir að
starar verptu í sambýli við fólk, t. d. í
loftræstitúðum, og var sett vírnet fyrir
opin.
Borgarnes 1964 og síðar
Sumarið 1964 sá Þorsteinn Einarsson
stara við hreiður á Jsakhorni hótelsins í
Borgarnesi. Þann 8. 6. 1964 sá Árni
Waag Hjálmarsson stara við hótelið og
153