Náttúrufræðingurinn - 1981, Page 13
einlitir (ekki með ljósum dröfnum).“ í
bréfinu fylgir nákværn lýsing á stað-
háttum. Stararnir smugu inn í holur of-
arlega í 15 — 20 m háum klettum þar
sem blágrýtið var smásprungið og flísað.
Akranes, frá 1971
I bréfi til min dags. 19. 3. 1978 greinir
Jón Pétursson frá landnámi stara á
Akranesi. Hann tók fyrst eftir störum
um áramótin 1970—1971 og sá þá 6
fugla, og þá um vorið sá hann þá bera
efni í hreiður. Síðan hefur störum fjölg-
að jafnt og þétt og telur Jón að um 20
pör verpi þar nú. Á vetrurn nátta þeir
sig inni í smíðahúsi við Skipasmiðastöð
Þorgeirs og Ellerts og hefur Jón talið
milli 50 og 60 fugla þar. Þann 29. 5.
1976 fann Jón dauðan stara við Skipa-
smíðastöðina sem merktur hafði verið
fullvaxinn i Reykjavík 14. 12. 1975.
Sudurnes, frá 1972
Að Minni-Vatnsleysu á Vatnsleysu-
strönd byrjuðu starar að verpa 1972--
1973 (samkv. uppl. starfsmanns svína-
búsins). Þann 3. 5. 1978 fann ég fimm
staði þar sem starar voru að byggja
hreiður og voru þau öll inn undir þak-
skeggi útihúsa. Annars staðar á Vatns-
leysuströndinni kannaðist fólk ekki við
að starar hefðu verpt þar um slóðir.
I \;ogum hafa starar verpt inni undir
þakskeggi að Vogagerði 33 siðan 1975.
Var þar hreiður í byggingu þann 3. 5.
1978. Einnig verptu starar á samkomu-
húsinu 1977 en steypt var undan þeint
(munnl. uppl. heimilisfólks að Voga-
gerði 33).
í Keflavík og Ytri Njarðvík hafa star-
ar líklega byrjað varp upp úr 1975. Að
Borgarvegi 13 gerðu starar sér hreiður
1976 en það var eyðilagt. Inngöngunni
var lokað 1977 en þann 3. 5. 1978 sá ég
þó stara smjúga inn um rifu á húsinu.
Að Vesturgötu 19 fannst starahreiður
með ungum um miðjan maí 1978 (Einar
Guðmundsson munnl. uppl.). Yfir vet-
urinn sjást oft starar í ætisleit i fjörunni
neðan við Njarðvíkurfitjar, en flestir,
um 100 sáust þar 26. 10. 1976. Tel ég
líklegt að um 10 pör verpi i Keflavík og
Ytri Njarðvik.
Fyrsta staravarp sem fólk vissi um í
Gerðum, var 1977 og þá liklega 4—5
pör. Sagði fólk að allt hefði verið gert til
að koma í veg fyrir þennan ,,ófögnuð“.
Ekki höfðu starar sést þar vorið 1978 og
sá ég engan stara þar 3. 5. 1978. Stara-
hópar sjást oft i Gerðum á vetrum.
Þann 20. 11. 1966 sá Ævar Petersen
30—40, 11.3. 1973 sá Sigurður Blöndal
50, Kristinn H. Skarphéðinsson sá þar
30 stara þann 9. 11. 1975 og ég sá 15 —
20 fugla þann 9. 11. 1976. Auk þess hafa
1 — 10 fuglar sést í nokkur skipti á vetr-
um.
Að Túngötu 3 i Sandgerði sá ég stara
smjúga inn undir þakskegg hússins
þann 3. 5. 1978. Kristinn H. Skarphéð-
insson og Jóhann Ó. Hilmarsson ræddu
við húsráðanda 4. 5. 1978 og fengu þær
upplýsingar að starar hafi verið þar i
varphugleiðingum 1973—1974. Eittpar
hefur komið þangað á hverju vori síðan
en aldrei getað verpt vegna ráðstafana
heimilisfólksins.
Ekki er vitað til þess að starar hafi
verpt í Höfnum en þeir sjást oft á vetr-
unr, mest 8 fuglar 26. 12. 1972 (Arnþór
Garðarsson). Stararsjást frekar sjaldan í
Grindavík en flestir (22) sáust þann
26. 12. 1972 skammt vestan við þorpið
(Jón B. Sigurðsson).
155