Náttúrufræðingurinn - 1981, Side 15
þakið í fyrrnefndu húsi og því tel ég
öruggt að starinn eigi hreiður þar inni
undir þakinu. Þetta er örugglega í
fyrsta sinn sem stari verpir hér á
Blönduósi." Þann 13. júlí sá svo Krist-
inn starann með fæðu í nefinu og 18. júlí
sá hann tvo nýfleyga unga (Kristinn
Pálsson 1978, spjaldskrá N. í.).
Starar hafa verið mjög sjaldgæfir
vetrargestir á Blönduósi samkvæmt
bréfi Kristins dags. 14. 4. 1978. Árin
1961 — 1977 sá Kristinn stara á Blöndu-
ósi sem hér segir: I febrúar 1963 voru
tveir starar, i mars 1965 hélt einn stari
sig í fjörunni, í febrúar 1969 sást einn
stari, í april 1971 sáust tveir og 29. maí
1977 sáust tveir starar í Spákonufells-
höfða.
ísafjörður 1978
Þann 19. 8. 1978 sá ég 5 stara á sjón-
varpsloftneti við Hraungötu, voru það 2
fullorðnir fuglar og 3 ungar frá vorinu.
Hvalfjörður 1979
Vorið 1979 verptu starar (1 eða 2 pör)
við Olíustöðina í Hvalfirði. Heyrðist í
ungum í skyggni framan við söluskál-
ann (Kristinn H. Skarphéðinsson).
ATHUGANIR Á NÁTTSTÖÐUM
OG TALNINGAR
Starar hafa þann sið svo sem fleiri
fuglar að safnast saman á ákveðna staði
á kvöldin og láta þar fyrirberast yfir
nóttina. í Reykjavík er nú kunnugt um
eftirfarandi náttstaði stara: Skógrækt-
arstöðin í Fossvogi, yfirbygging stúku
Laugardalsvallar, norðurgafl Háskóla-
bíós, Áburðarverksmiðjan i Gufunesi,
hraðfrystihúsið á Kirkjusandi og sím-
stöðin við Suðurlandsbraut. Talningar,
bæði beinar og af myndum, hafa verið
gerðar við flestalla náttstaðina. Tvær
talningar voru gerðar árið 1975 en siðan
talið af og til frá júlí 1977 og fram til
vors 1978. Þeir sem tóku þátt í talning-
unum auk min voru: Erling Ólafsson,
Gunnlaugur Pétursson, Ingólfur
Guðnason, Jóhann Óli Hilmarsson,
Kristinn H. Skarphéðinsson, Ólafur K.
Nielsen, Sigfús Nikulásson, Sigbjörn
Kjartansson, Þorvaldur Björnsson og
Örn Óskarsson.
Skógrcektarstöðin í Fossvogi
Eftir að stararnir náðu fótfestu i
Reykjavík virðast þeir strax hafa farið
að nota grenitré í Skógræktarstöðinni
sem náttstað. Þann 15. 11. 1959 voru
a. m. k. 100 starar þar og 22. 11. 1959
komu 100—150 og náttuðu sig þar.
Þann 28. 12. 1960 voru 60—80 starar á
náttstað i Skógræktarstöðinni (Jón B.
Sigurðsson).
Skráðar athuganir fram til 1970 eru
takmarkaðar, en greinilegt er að starar
náttuðu sig á þessum árum þarna, en þó
ekki verulegur fjöldi. Seinni hluta 7.
áratugsins fór þeim að fjölga verulega
og þann 28. 9. 1970 var mjög mikið af
störum á náttstaðnum (Ævar Petersen).
Þann 20. 10. 1973 taldi Ævar hluta af
störum sem sátu á símalinu við Skóg-
ræktarstöðina og áætlaði út frá því
heildarfjöldann, alls um 4000 fugla.
I Skógræktarstöðinni í Fossvogi eru
5 — 6 grenilundir með allt að 8—10 m
háum trjám. Þrír þeirra hafa verið
langmest notaðir, Svartiskógur, austan
við aðalhlið Skógræktarstöðvarinnar,
Hermannslundur í norðausturhorni
Skógræktarinnar og grenilundur neðan
skrifstofubyggingarinnar. Af þeim er
Svartiskógur langmest notaður einkum
157