Náttúrufræðingurinn - 1981, Side 40
Hörður Kristinsson, Sigríður Baldursdóttir
og Hálfdán Björnsson:
Nýjar og sjaldgæfar fléttutegundir
á birki í Austur-Skaftafellssýslu
INNGANGUR
ítarlegustu rannsóknir, sem gerðar
hafa verið á fléttum á trjám á íslandi
voru unnar af sænskum grasafræðingi,
Gunnari Degelius. Hann ferðaðist um
landið árið 1956 og birti ritgerð um
niðurstöður sínar árið eftir (Degelius
1957). í þeim telur hann 102 tegundir
fléttna, sem vaxa á íslenskum trjám, og
hefur þá einnig yfirfarið eldri söfn, og
bætt þannig við sínar eigin upplýsing-
ar. Degelius gerir þessu efni mjög ítar-
leg skil, og ýmsar þær tegundir, sem
hann telur, eru afar sjaldgæfar. Fáeinar
eru slæðingar, sem hafa flust inn með
viði, án þess að ná nokkurri útbreiðslu í
landinu. Einnig eru taldar með nokkrar
tegundir, sem oftast vaxa á öðru und-
irlagi og heyrir til undantekninga, að
þær fmnist á trjám.
Það má því segja, að allt sé tínt til,
enda hafa síðari athuganir á íslensku
fléttuflórunni ekki leitt í ljós neinar
verulegar viðbætur tegunda á trjám,
fyrr en nú.
í Austur-Skaftafellssýslu kom Dege-
lius aðeins í Bæjarstaðar- og Skaftafells-
skóg, og þótt Bernt Lynge, norskur
grasafræðingur, hafi safnað fléttum í
grennd við Hoffell árið 1939, bendir
ekkert til að hann hafi skoðað birkið á
því svæði (Lynge 1940).
Samt kom það nokkuð á óvart, er
tvær nýjar tegundir, Cetraria pinastri
(Scop.) S. F. Gray og Platismatia glauca
(L.) W. Culb. & C. Culb., fundust á
birki í Tungufellsskógi innan við Hof-
fell í Nesjum við Hornafjörð sumarið
1979. Auk þessara nýju tegunda voru
þarna nokkrar afar fágætar fléttuteg-
undir á birki, t. d. Hypogymnia physodes
(L.) Nyl., H. tubulosa (Schaer.) Hav. og
Parmeliopsis ambigua (Wulf.) Nyl., og
bentu því þessir fundir eindregið til
þess, að hér og í nálægum skógum
mætti vænta fleiri nýjunga á þessu
sviði. Það var því ákveðið, að kanna
betur útbreiðslu fléttna á birki á svæð-
inu frá Suðursveit norður í Lón (Sig-
ríður Baldursdóttir 1980). Leiddi þessi
Náttúrufræðingurinn, 51 (4), bls. 182—188, 1981
182