Náttúrufræðingurinn - 1981, Side 44
Hypogymnia tubulosa (Schaer.) Hav.
Blaðflétta, grá eða hvítleit á efra
borði, en svört eða dökkbrún neðan,
með sérkennilega sívölum bleðlum, hol-
um að innan og oft með útbrotum í
endann.
Þessi tegund var áður aðeins fundin á
tveim stöðum á landinu, á Húsavík
(leg. Bernt Lynge 1937) og Selási í
Reykjavík (leg. Hörður Kristinsson
1978), á báðum stöðunum sem slæðing-
ur á innfluttum viði. í Austur-Skafta-
fellssýslu fannst tegundin á öllum fimm
skógarsvæðunum á villtu birki, sums
staðar stór og falleg eintök. Leikur því
ekki vafi á því nú, að þetta er íslensk
tegund, sem hefur aðalútbreiðslu í
skógunum í Austur-Skaftafellssýslu, og
aðeins þekkt sem slæðingur utan þeirra.
Parmeliopsis ambigua (Wulf.) Nyl.
Fíngerð blaðflétta, grá með aðeins
gulleitum blæ af usnin-sýru, með
kringlóttum, kúptum útbrotum á efra
borði, svört eða dökkbrún neðan.
Þessi tegund fannst fyrst í ísafjarðar-
dal (leg. Stefán Stefánsson 1893) og í
Egilsstaðaskógi (leg. Bernt Lynge
1939), á báðum stöðunum á birki. Nú
fannst þessi fágæta tegund á tveim stöð-
um til viðbótar, í Viðborðsdal á Mýr-
um (leg. Sigríður Baldursdóttir 1979)
og í Tungufellsskógi við Hoffell (leg.
Sigríður Baldursdóttir 1979).
Platismatia glauca (L.) W. Culb. & C.
Culb.
Stórgerð blaðflétta, með breiðum
(allt að 1 cm), skertum og hrokkinrend-
um bleðlum, gráum og oft með brúnum
eða dökkleitum dröfnum á efra borði,
brúnum að neðan. Vottar fyrir útbrot-
um á jöðrunum.
Tegund þessi hefur ekki áður fundist
hér á landi, en reyndist allútbreidd í
skóglendi því, sem skoðað var í Austur-
Skaftafellssýslu. Fannst hún í Tungu-
fellsskógi (leg. Hörður Kristinsson
1979), í Viðborðsdal, Dalskógum og
Austurskógum (leg. Sigríður Baldurs-
dóttir 1979) og í Steinadal í Suðursveit
(leg. Hálfdán Björnsson 1981).
Pseudevemia jurfuracea(L. ) Zopf.
Blaðflétta með sérkennilegum,
löngum og grönnum bleðlum, sem eru
kúptir ofan en íhvolfir eða grópaðir neð-
an, og getur því virst runnkennd að
vaxtarlagi. Efra borð ljósgrátt, oft
meira eða minna þakið örflnum grein-
um og sepum (isidia), svört eða dökk-
brún neðan.
Þessi tegund var ekki áður þekkt frá
íslandi og fannst aðeins á einum stað, í
Austurskógum í Lóni á birkistofni (leg.
Sigríður Baldursdóttir 1979).
Usnea subfloridana Stirt.
Runnflétta, beingul-grágræn, aðal-
greinar þétt settar fíngerðum hliðar-
greinum, sem oftast standa hornrétt á
aðalgreinina. Mikilvægt tegundarein-
kenni eru útbrot, sem eru með hárfín-
um sepum, en koma fyrst fram á þrosk-
uðum eintökum.
Tegund þessi hefur ekki áður fundist
á íslandi. Hún virðist þó vera allút-
186