Náttúrufræðingurinn - 1981, Page 49
veturna aðallcga í löndum sem liggja að
Eystrasalti og Norðursjó (Svíþjóð,
Finnlandi, Póllandi, A-Þýskalandi,
Danmörku). Þá heí'ur hún sést á Bret-
landseyjum, í Frakklandi og á Spits-
bergen (Cramp og Sirt)mons 1977).
Sumarið 1981 sást einn karlíúgl þess-
arar tegundar paraður æðarkollu í
æðarvarpi í Hollandi. Arin 1979 og
1980 höfðu karlfuglar sömu tegundar
sést á þcssum slóðum (Swennen 1981).
Af öðrum tegundum andaættarinnar
(Anatidae) eru æðarfuglar skyldastir
bliköndinni. í þeim hópi eru, auk æðar-
fugls, æðarkóngur (Somateria spectabilis
(L.)) og gleraugnaæður (S.fischeri
(Brandt)). Ólíkt öðrum öndum, eru
þessar þrjár æðarfuglstegundir að
mestu sjófuglar. Bliköndin er hins veg-
ar meiri ferskvatnsfugl en hinar tegund-
irnar þrjár. Því var ekki óviðbúið að sjá
hana á Mývatni, þótt það sé langt inni í
landi.
Bliköndin, sem sást á Mývatni, er ef
til vill komin frá þeim hópi blikanda,
sem á vetrarstöðvar við norðurstrendur
Skandinavíu. Arnþór Garðarsson
(1976) túlkaði tilkomu hvítanda á ís-
landi þannig, að þær hafi flækst með
hvinöndum frá Norður-Evrópu. Blik-
öndin kann einnig að vera þannig kom-
in til íslands. Þó má telja líklegra, að
hún hafi flækst hingað með æðarfugl-
um, en æðarfuglar, sem merktir voru á
Spitsbergen, hafa fundist við norðan-
og austanvert ísland.
S U M M A R Y
Steller’s Eider
(Polysticta stelleri Pallas))
recorded for first time in Iceland
by Anthony Martin
N.E.R.C., Sea Mammal Research Unit
c/o British Antardic Survey
Madingley Rd., Cambridge CB3 OET
England
An adult male Steller’s Eider (Polysticta
stelleri (Pallas)), in full breeding plumage,
was present on the N.E. edge of Lake Mý-
vatn, North Iceland, on 5 June 1981. The
bird was seen on four occaions until 16
June, and identification was confirmed by
three other independent observers. This is
the first Icelandic record of this species,
which has been reported from several other
countries of Northern Europe in recent
years. The breeding area of this duck is
normally restricted to Northern Siberia and
Alaska though nesting has been observed in
Novaya Zemlya and probably taken place
once in Norway.
HEIMILDIR
Cramp, S. & K.E.L. Simmons (ritstj.). 1977.
The Birds of the Western Palearctic. 1.
bindi. Oxford, London, New York.
Garðarsson, Arnþór. 1976. Hvítendur (Mergus
albellus) heimsækja ísland. Náttúrufr.
46:27-36.
Swennen, C. 1981. [Steller’s Eider Polysticta
stelleri new for the Netherlands]. Limosa
54:93-95. (Á hollensku með ensku
ágripi.)
191