Náttúrufræðingurinn

Volume

Náttúrufræðingurinn - 1935, Page 49

Náttúrufræðingurinn - 1935, Page 49
NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN 37 lllllllillllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllMIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIII dýrinu, sem hér eru að verki. I kynkirtlum spendýranna og fuglanna eru nefnilega sellur, hinar svonefndu interstitiellu sell- ur, eða millisellur, sem ekkert koma nálægt því að framleiða frjó eða egg. Starf þeirra er það, að framleiða vökva, sem fer út í blóðið og hefir gagnger áhrif á allan líkamann. Hjá öjlum þeim tegundum dýra, þar sem mismunur er á karl- og kven- dýri, er það þessi vökvi, sem skapar mismuninn, hann einn ræð- ur öllum ytri mismun á karli og konu. Við rannsóknir Rowmans kom það í ljós, að þegar líkamsfjör fuglanna eykst, og allar hreyfingar verða örari, til dæmis fyrir áhrif ljóssins, stækka kynkirtlarnir mikið, og þá ekki sízt þessar millisellur, og þær fara að framleiða efni, sem fer út í blóðið. Það er þetta efni, sem setur ferðahug í fuglinn. Að vísu verður ekki sagt, hvort þessi skýring er algild, en hitt er víst, að hún hefir mikið til síns máls og er byggð á gild- um rannsóknum. En ef þetta reynist rétt, þá er enn fundinn einn liðurinn í þeirri orsakakeðju, sem ræður ferðum farfuglanna. Og þá má ekki gleyma því, að það eru til dýr, önnur en fugl- arnir, sem fara reglubundnar langferðir. Eða finnst okkur ekki þorskurinn og síldin hér við land minna nokkuð á farfugla í öllum hreyfingum? Gaman væri að athuga, hvaða hlutdeild hitinn, ljósið og seltan í sjónum eiga í ferðum nytjafiskanna, á hvern hátt þau verka og hvernig orsakasambandið er. Hér er alveg áreiðanlega nægilegt verkefni að leysa af hendi fyrir fjölda manna, mann fram af manni, því að það gagn, sem ár- angur slíkra rannsókna gæti haft í för með sér, er alveg auð- sætt. Við getum ekki beizlað náttúrulögmálin, en við getum stöðugt nálgast það meir og meir að skilja þau til hlítar. Það, sem við getum ekki tamið og lagað eftir okkur, er einmitt þörf á að skilja niður í kjölinn, svo við getum lagað okkur eftir því. Á. F.

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.