Náttúrufræðingurinn

Årgang

Náttúrufræðingurinn - 1938, Side 5

Náttúrufræðingurinn - 1938, Side 5
NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN 49 <11111111.Illlllíllllllllllll.. Um útbreiðslu dýranna á jörðunni. Frh. III. Loftslag. Lengi fram eftir héldu menn því fram, að loftslagið væri það aðalafl, sem stemdi stigu fyrir þrifum dýranna eða gæfi þeim vöxt og viðgang, þar sem það væri hentugt. En eins og nú skal verða sýnt, er þetta ekki að öllu leyti rétt. í fyrsta lagi verðum við að gera greinarmun á þeim dýrum, sem hafa mis- heitt eða kalt blóð, eins og flest öll dýr hafa, og hinum, sem hafa jafnheitt, eða heitt blóð, en þau eru spendýr og fuglar. Manni skyldi nú virðast, að dýr með jafnheitu blóði stæðu mun betur að vígi með að skapa sér heimkynni, þar sem þau geta haldið líkamshita sínum innan ákveðinna marka, og þar með haldið lífsstörfunum áfram, hvort sem heitt er eða kalt, en þetta er aðeins að sumu leyti rétt. Verði nefnilega hitinn eða kuldinn of mikill, bilar það líffærakerfi, sem temprar líkamshitann, en það hefur vanalega dauðann í för með sér. Á hinn bóginn verð- ur að taka tillit til þess, að ýmsar tegundir dýra þola hitabreyt- ingar mjög misjafnlega v.el, því að sum dýr geta einungis þrifizt þar sem hitinn er innan glöggra marka allt árið, eins og til dæm- is mannaparnir, en önnur geta lifað við mjög mismunandi hita, en þar má nefna tígrisdýrið, sem dæmi. Heimkynni þess nær nefnilega alla leið frá h.inum steikjandi hita S.-Asíu norður í Sí- beríu. Yfirleitt má þó segja, að dýralífið sé fjölskrúðugast á þeim stöðum, þar sem loftslag er nokkurn veginn jafnheitt, eða sem við köllum eyjaloftslag, en yfirleitt fáskrúðugt þar sem mikill er munur sumars og vetrar, þar sem meginlandsloftslag ríkir. Að sjálfsögðu koma ýmsir aðrir liðir loftslagsins en einmitt hitastigið til greina, en þar má fyrst og fremst nefna rakann, en þó hefur reynslan sýnt, að hann hefur ekki eins mikla þýð- ingu fyrir dýrin eins og hitinn, eða eins og hann hefur fyrir plönturnar. IV. Ferðir og tálmanir. Við höfum nú séð, hvaða skilyrði þurfa að vera fyrir hendi til þess að einhver dýrategund geti þrifizt á einhverjum stað: Nægileg fæða við hæfi dýrsins, en hiti og raki innan ákveðinna 4

x

Náttúrufræðingurinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.