Náttúrufræðingurinn

Volume

Náttúrufræðingurinn - 1938, Page 16

Náttúrufræðingurinn - 1938, Page 16
60 NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN iiiiiiiiiimiiimiimiiiiiiiiiiimiimiimimiiiiiiiiMiiiimiiiiiiiiiiiiiimmmmiiimimiiiiiiiiiiiimiimiiimiiimiimiiiiimiiiiiimi vilta hundategund, klauf dýr engin, nema þessi eina svínstegund, tannleysingjar engir, selir engir. En það sem Ástralíu vantar á einu sviði, hefir hún á öðru. Eng- inn flokkur spendýra hefir sett jafn greinilegan svip á álfuna eins og hin svonefndu pokadýr, að nefdýrunum einum undan- skyldum. Við hlið nefdýranna eru pokadýr einkennisdýr álfunn- ar, og hvergi til nema þar, nema hvað tveir ófullkomnir flokkar pokadýra eru til í ameríku, en þá vantar aftur í Ástralíu. 1 Ástralíu eru taldar um eitt hundrað og þrjátíu tegundir af poka- dýrum, mjög mismunandi að stærð, útliti og í lifnaðarháttum. Þegar spendýrunum er skipt niður í ættbálka eftir útliti, lifn- aðarháttum og skyldleika, koma fram greinilegar skyldleika- heildir eins og til dæmis rándýr, öll með tántönn, hófdýr, öll með hófum, klaufdýr, öll með klaufum, selir, allir með fitjum á milli tánna o. s. frv., og alveg samskonar samræmi er innan hvers flokks í aðaldráttum, til dæmis í lifnaðarháttum. Um poka- dýrin er allt öðru máli að gegna. Það eru að vísu til einkenni, meira að segja frumleg einkenni, sem tengja þau saman í eina heild, en á hinn bóginn eru þau hvorki fugl né fiskur, þau eru svo ólík sín á milli að útliti, og ólík í lifnaðarháttum, að það má frekar líkja þeim við öll hin spendýrin í einu lagi, heldur en að gera þau að einum sérstökum ættbálki innan spendýranna. Poka- dýrin eru í raun réttri dálítið afskræmd spegilmynd af öllum hin- um spendýrunum. Skygnumst við niður að rótunum á lífstré spendýranna, virðist stofn hinna frumlegustu og elztu snemma hafá skotið grein, en hún er nefdýrin. Síðar hefir allur stofninn kvíslast í tvær miklar greinar, en þó misþroskamiklar, pokadýr- in annarsvegar, eða öllu heldur hina frumlegustu byrjun til pokadýra annars vegar, og hina frumlegustu byrjun til annara spendýra hins vegar. Pokadýrunum var svo fengin Ástralía til heimkynnis, en hinum flokknum allur heimurinn, nema Ástralía. Hann hefir haft gýfurlega mikið svæði, og feikna fjölskrúðug skilyrði, og því er hann nú, eftir áramilljónirnar, orðinn að jafn- ólíkum dýrum og hundi, hesti og hnýsu, en það eru fyrst og fremst lifnaðarhættirnir, sem hafa ráðið breytingunum. Poka- dýrin hafa potað í sínu horni, í því landi, sem forsjónin gaf þeim til dvalar, einnig þau hafa lifað á mismunandi hátt, og því er nú munurinn á þeim jafn mikill og hann er. Meðal þeirra eru til dæmis dýr, sem lifa á ránum, eins og til dæmis pokaúlfurinn, sem er á stærð við úlf, meðal þeirra eru dýr, sem lifa á skordýr-

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.