Náttúrufræðingurinn

Volume

Náttúrufræðingurinn - 1938, Page 51

Náttúrufræðingurinn - 1938, Page 51
NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN 95 ............................................................ árinnar, er nú hamla göngu laxanna. Er þegar byrjað á sprengingu fossabergisins. Athugasemdir þær, sem menn hafa gert við þessa ráðstöfun Fnjóskdælinga, eru tvennskonar. I fyrsta lagi er álitið, að hinir ensku laxaveiðimenn hafi að einhverju leyti gabbað sveitarfélagið fjárhagslega; í öðru lagi er talað um skammsýni í sambandi við að láta sprengja fossabergið, vegna gagnsemi fossanna til raf- lýsingar í dalnum. Ef fyrri athugasemndin er athuguð með nokkurri skynsemi, verður hún hégómi einn. Þau tuttugu ár, sem Englendingarnir hafa elfuna til umráða, er síst of mikið gjald fyrir jafn þýðingar- mikið verk og það er, að gera hana laxgenga. Að þeim tíma liðn- um ganga Fnjóskdælingar að fullkomlega arðbærri laxá, án þess að hafa kostað til hennar svo mikið sem einseyringi. Og eflaust má einnig gera ráð fyrir að dalbúar hefðu eigi fullkomnað fossa- sprengingarnar sjálfir á tuttugu næstu árum. Sú eina fyrirhöfn, sem þeir þurfa nú að leggja á sig til þess að geta hagnýtt ána, þegar þeir taka við henni aftur, er verklegt nám í laxveiðum og laxaklaki. Og þá erfiðleika ættu þeir að vera menn til að yfir- stíga. Síðari athugasemdin, raflýsingar-áhyggjan, er einnig nokkuð vanhugsuð. Eigi að raflýsa alla sveitina, eins og yngri menn með- al dalbúa tala nú mikið um, er sjálfsagt að taka þátt í tilvonandi rafvirkjun Akureyrar á Laxá í Þingeyjarsýslu. Bygging rafstöðv- ar við Fnjóská hefði tvo ókosti í för með sér. Rafmagnið yrði of dýrt og laxaklakið ekki neitt. Beri dalbúa hins vegar gæfu til að hugsa þessi mál á réttan veg, og vilji þeir nokkru fórna, ættu næstu tuttugu ár að geta fært þeim bæði tiltölulega ódýrt rafmagn frá Laxárstöð og undirbúning að nokkrum fyrirmyndar laxaklakstöðvum við Fnjóská. Þá verð- ur bjart í húsum Fnjóskdælinga og lax á borðum þeirra. Og eins og nætur flýja daga hverfa þeim allar endurminningar um salt- fiskát við skin daufra ljósa. Sigurður Draumland.

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.