Náttúrufræðingurinn

Volume

Náttúrufræðingurinn - 1938, Page 65

Náttúrufræðingurinn - 1938, Page 65
NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN 109 .lllllllllllll.Illllllllllllllllllllllllllllll.Illllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllll.Illlllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllll an fisk, svipaðan ufsa, að ræða, sem og reyndist svo. Það var sem sé 1 y r, en hann er mjög líkur ufsa, bæði að stærð (þessi var 84 cm. langur), í vexti, er nokkuð stirtlugildari og yfirmynnt- ari (neðri skolturinn framstæðari en á ufsa) og skrautlegri á litinn, en aðallega frábrugðinn ufsanum, sem hann er annars skyldastur, í því, að rákin tekur á sig stóran bug niður á síðuna undir 1. og 2. bakugganum, en er nærri bein á ufsanum. Lýrinn er meiri grunnsævisfiskur en ufsinn og heldur sig einkum á grýttum botni og lifir þar á ýmsum krabbadýrum eða síli, en getur vel lyft sér upp í sjóinn, ef því er að skipta. Hann gýtur svifeggjum og seiðin klekjast út við yfirborð, eins og þeg- ar um aðrar þorsktegundir er að ræða. Hann er veiddur tölu- vert við England og Noreg en lítið annarsstaðar, en þykir ekki góður átu, varla betri en ufsinn. Þessi eini fiskur, sem fékkst í júní, veiddist í ufsadrætti, o: var þar innan um ufsa, eins og sinn nánasta ættingja. Tæplega hefir hann verið eini lýrinn, sem hér hefir verið á ferð í þetta skipti, og ekki er ólíklegt, að hann sé hér oftar, og vil eg biðja athugula fiskimenn að gá að honum og láta mig vita, ef hans kynni að verða vart. B. Sæm. Stórt hænuegg. I dag kom óvenju stórt hænuegg í verslun kaupfélags Rangæ- inga að Rauðalæk. Eggið var frá Kvíarholti og vóg 99 grömm. Iiænuegg af venjulegri stærð vega 50—65 gr. Rauðalæk, 28. júlí 1938. Aðalsteinn Teitsson frá Víðidalstungu.

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.