Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 1938, Síða 67

Náttúrufræðingurinn - 1938, Síða 67
NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN 111 .llllllll■llllll■■lll■■l■llllll■llllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllll■llllllll■■ll■lll■■l■ll■■■l■lllllllllllllll tíminn að lengjast hjá Biloxi-baununum og varð loks við spír- un um hásumarið, 146 dagar. Blaðvaxtartíminn hjá Peking-baun- unum fór að lengjast við spírun í maí og varð loks 66 dagar. Aftur á móti breyttist blaðvaxtartíminn ekkert hjá Mandarin- baununum. Tíminn frá spírun til blómgunar varð alltaf um 25 dagar, hvenær sem baunirnar voru látnar spíra. Það tókst líka að stytta blaðvaxtartímann að sumrinu með því að skyggja á plönturnar frá kl. 6 að kvöldi til kl. 6 að morgni. Að vetrinum lánaðist ennfremur að lengja blaðvaxtartímann með því að láta ljós skína á plönturnar frá sólsetri til miðnættis. Þessar tilraunir vöktu milda eftirtekt og sönnuðu að daglengdin hefir afarmikil áhrif á lengd blaðvaxtartímans. Samkvæmt þessu er plöntunum skipt í þrjá aðalflokka eftir birtunæmi þeirra: 1. Langdegis- plöntur. Þær blómgast bezt þegar dagurinn er langur, helzt yfir 14 tíma. Það hafa ýmsar síðari tilraunir sýnt. 2. Skammdegis- plöntur. Þær blómgast fyrst við stuttan dag eins og sagt er um Peking og Biloxi-baunirnar. 3. Plöntur, sem viröast ónæmar fyrir daglengdinni, t. d. Mandarin-baunir. Sumar plöntur krefjast þannig skammdegis til að ná eðlilegum þroska. Þetta þverbrýtur hina gömlu reglu að ætíð sé bezt að hafa sem mest af birtu svo að kolsýruvinnslan aukist. Skammdegisplönturnar eru hér undan- tekning. Það er því ærin munur á langdegis- og skammdegis- plöntum. Tilraunir með rúg og hirsi sýna þetta glöggt. Rúgurinn og hirsið voru ræktaðar við ýmsar daglengdir, 9—12 og 18 tíma birtu á sólarhring. Hirsið bar aðeins blóm þegar dagarnir voru stuttir, en rúgurinn blómgaðist ef dagurinn var 18 tímar. Annars uxu aðeins blöðin. Rúgurinn er langdegisjurt en hirsið skamm- degisjurt. Hirsið er líka hitabeltisjurt og vant stuttum dögum þar, en rúgurinn á heima í tempraða beltinu, sem hefir langa sumardaga. Dahlíur og Chrysanthemur eru einnig suðrænar skammdegisjurtir. Þær blómgast á haustin á Norðurlöndum, þeg- ar dagurinn er orðinn stuttur. Þetta hafa menn sumstaðar fært sér í nyt. I Californiu hefir garðyrkjumaður látið útbúa stór gróðurhús, þannig að það er dimmt í þeim frá kl. 6 að kveldi til kl. 6 að morgni. Þannig hefir hann fengið alblómgaðar Chry- santhemur 2 mánuðum á undan öðrum og grætt drjúgan á þessu. Jólastjörnur (Poinsettia pulcherrina) eru skammdegisjurtir og bera auðveldast blóm um jólaleytið hjá okkur. Blaðvaxtartíminn ákveðst þannig mjög af lengd dagsins en ekki eingöngu af hita- anum eða „innri orsökum" eins og fyrr á tímum var álitið.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Náttúrufræðingurinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.