Náttúrufræðingurinn - 1939, Blaðsíða 6
50 NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN
amiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimmiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiiiiiiiiiiiiiiiiMiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiiimiiiiiimmimimiiimmiiiiiiimm
ust, og í goðsögnum Norðurlanda koma eplin oftsinnis fyrir (Ið-
unnarepli).
1. mynd. Apaldursgrein með eplum.
Það er lærðra manna mál, að eplin hafi verið ræktuð á Norð-
urlöndum að minnsta kosti í 2000 ár fyrir upphaf vors tímatals,
bæði í Danmörku og Svíþjóð og líklega í Suður-Noregi, því að frá
þeim tíma eru til leifar af eplum, sem ætlað er að hafi verið þurrk-
uð til geymslu.
Til Norðurlanda hafa eplatrén flutzt frá suður- og austurhlutum
Evrópu, en hvar ræktun þeirra hófst fyrst er ennþá algjörlega
hulið mál.
Alla tíð síðan eplaræktin hófst fyrst, hafa menn reynt á ýmsa
vegu að fá fram betri tegundir en þær, sem til voru á hverjum
tíma, og árangurinn af erfiði áhugamannanna á hinum liðnu öld-
um eru epli nútímans, sem eru ekki aðeins ræktuð í Evrópu og