Náttúrufræðingurinn - 1939, Blaðsíða 51
NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN 9&
111111111111111111111111111111111111111111II111111111111111111111111111111111■11111111111111111111111111111111 ■111111 ■ ■ 11 ■ ■ I ■ I ■ ■ 11111 ■ ■ 1111111 ■ 111111111111111111
jökulhlaupið 1612 hafi einnig orsakast af eldsumbrotum í Kötlu-
gjá. Ég hykk því, að eldgosið 1612 hafi verið úr Kötlu og hafi þá
orðið óvenjulega stutt á milli Kötlugosa, þar sem næsta gos varð
aðeins 13 árum síðar. Hitt virðist mér vafasamara, hvort Eyja-
fjallajökull hafi líka gosið 1612. Samband virðist hafa verið milli
gossins úr Eyjafjallajökli 1821 og Kötlugossins 1823, og getur því
vel verið, að bæði þessi eldfjöll hafi gosið 1612, þótt efalaust hafi
minna kveðið að gosinu úr Eyjafjallajökli. Gæti þetta verið skýr-
ing á því, að Björn á Skarðsá nefnir Eyjafjallajökul í þessu sam-
bandi, en annars á lýsing hans á gosinu miklu betur við Kötlugos.
Mín ályktun verður þess vegna, að Katla hafi gosið 12. október
1612, og ef til vill hafi sama ár verið einhver eldsumbrot í Eyja-
fjallajökli.
Þorkell Þorkelsson.