Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 1942, Síða 50

Náttúrufræðingurinn - 1942, Síða 50
44 XÁTTÚR UFRÆÐINGURINN á Vestfjörðum. Þúsundblciðarósin er algeng á Vestfjörðum og við utanverðan Eyjafjörð. Er einnig fundin á Austfjörðum. Kleitafrúin prýðir hamrana á Suðausturlandinu, luir.stajafninn vex aðeins i BreiðdaJ o. s. frv. Svona mætti lengi telji. Er hér merkilegt rannsóknarefni fvrir grasafræðinga og jarðfræðinga. Talið er, að landið liafi sigið mjög um miðbikið, en gosefni síðan fyllt lægðina og hindrað það, að Vestfirðir og Austfirðir yrðu að eyjum. Eiga byltingar í landslagi og misjöfn ísalög á ísöldum einhvern ])áll í útbreiðslu tegundanna? Komu Austfjarðajurtirnar að austan í fyrstu, en mættu tálmunum og eru nú enn á vesturleið? Þessum s])urningum munu fræði- menn framtiðarinnar leitast við að svara. Óðum fjölgar þeim, sem skoða gróður sveitar sinnar og leggja jafnvel leið sina inn á öræfi. Það er ómaksins vert. Reykjavík, 22. desember 1941. Ingólfur Davíðsson. Ársæll Árnason: Sauðnautin í Noregi. Haustið 1932 var sleppt nokkrum sauðnautum (kálfum) á þeim stað, sem lieitir Hjerkinn í Dofrafjöllum í Noregi. Þau voru látin vera þar alveg frjáls, nema hvað lilið var eftir þeim öðru hverju, lil þess að vita hvernig þau þrifust. Eg hefi litið getað fylgzt með þessu, en þó svo mikið, að þar virðist allt ganga með eðlilegum hætti. Það slys vildi lil fyrsta vet- urinn, að einhver þeirra höfðu farið út á snjóhengju, er féll n'iður og drápust nokkur af þeim. Um kvilla liefi ég ekki lieyrt talað í þeim. Nýlega sendi mér kiumingi minn úrklippu úr norsku blaði, Nationen, sem því miður var ekki alveg nýtt (frá 4/7. 1939), en af þvi að ég býst við að fleirum en mér þyki gaman að þvi, sem ]>ar er sagt frá, og hið getur orðið á að maður fái fréttir eða blöð frá Noregi, set ég hér efni greinarinnar. Nýlega fóru nokkrir menn með flokk kynbótanauta inn að Herlaugarseli í Amótsdal. Þar er gamalt sel, sem brann fyrir nokkrum árum, og er selið nú notað sem nautahagi.

x

Náttúrufræðingurinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.