Náttúrufræðingurinn

Volume

Náttúrufræðingurinn - 1949, Page 41

Náttúrufræðingurinn - 1949, Page 41
Ingólfur Davíðsson: Slæðingar í Reykjavík og grennd 19. ágúst 1948 kom Kjartan Magnússon, Flókagötu 37, Reykja- vík, með einkennilega jurt, sem hann hafði þá nýlega fundið við fiskverkunarstöðina Dverg, Framnesvegi. Sagði Kjartan, að sér hefði virzt vaxa þar eitthvað fleira fágætt, sem sennilega hefði slæðzt inn með eikinni Iians Áka. En eikin var geymd á svæðinu, og fylgdi lienni talsvert rusl, vestan frá Ameríku. Jurtin reyndist vera salturt (Suaeda maritima Dum), hélunjólaættar, ný tegund hér á landi. Vex hún á víð og dreif á fiskþurrkunarreitum. Salturtin er einær, hár- laus, mjög safamikil jurt, fjölgreinótt eins og lirísla. Hæð um 20 crn, en oft er jurtin jarðlæg að mestu. Venjulega blágræn að lit, en getur orðið vínrauð á þurrum stöðum. Blöðin stakstæð, mjó, hálf- sívöl. Blómin snrá, grænleit, 2—3 saman í blaðöxlunum. Salturtin var hér þroskaleg, en bar samt ekki blóm. Þessi tegund vex við sjó á Norðurlöndum og víðar. Nokkrum dögum síðar skoðuðum við Ingimar Óskarsson svæðið við Dverg og fundurn þar ýmsa slæðinga: akurfax (Bromus arven- sis L), arfamustarð (Sinapis arvensis L), arfanœpu (Brassica campes- tris L), bókhveili (Fagopyrum sagittatum Gil), liélunjóla (Cheno- podium albunr L), gallarfífil (Sonchus asper Hill), grísafífil (Sonchus arvensisL), vafsúru (Polygonum convolvulus L), sápujurt (Vaccaria parviflora Moenck Med) og runnakerfil (Torilis (Anthriscus) jap- onica D. C.). Er þetta mjög mikið á litlum bletti, og hafa slæðingarnir auðsjáan- lega borizt inn með vörum. Auk þess uxu þarna tvær tegundir liálf- þroskaðar, sem ekki urðu ákvarðaðar, önnur körfublómaættar. Flest- ir eru slæðingarnir allalgengir í Reykjavík og grennd. Grisafífil (S. arvensis) sá ég síðar um sumarið á dálitlum bletti við Gufudal í Ölfusi, þroskalegan vel og í blómi.

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.