Náttúrufræðingurinn

Årgang

Náttúrufræðingurinn - 1953, Side 15

Náttúrufræðingurinn - 1953, Side 15
tJR SÖGU HELLISKVÍSLAR 9 metra norður frá lónsstæðinu. Rennsli hennar minnkaði sýnilega, eftir því sem lengra kom, vegna niðursigs í hraunið, en ekki entist ég til að ganga fyrir endann á henni. Ekki get ég tímasett nákvæmlega, hvenær Helliskvísl lauk við að fylla upp lónið. Guðmundur i Múla taldi, að það mundi hafa orðið nálægt 1940, og mun það nærri lagi. Litið hefur verið eftir af því 1937 og ’38, því að þau sumur var þetta svæði ljósmyndað úr lofti, og á korti Landmælingastofunnar dönsku, sem gert var eftir þeim ljósmyndum, er ekkert vatn sýnt í lónsstæðinu. Samkvæmt þessu hefur Helliskvísl verið um 25 ár að fylla upp lónið. Að því verki loknu stendur hún betur að vígi en áður í framsókn sinni. Það magn af sandi og leir, sem áður settist til og lá eftir í lóninu, berst nú þar fram hjá viðstöðulaust og kemur í góðar þarfir i fremstu víglínu til að fylla og þétta óteljandi hraunsvelgi. Á hinn bóginn má búast við, að breyting Helliskvíslar á síðustu áratugum úr jökulá í bergvatnsá muni draga verulega úr mætti henn- ar til framsóknar í nýjum farvegi, því að jökulgormurinn er eflaust hið ákjósanlegasta þéttiefni í gropin hraun og vikra. En eins og áður segir, gruggast Helliskvisl enn og fær á sig fullkominn jökulvatna svip í hvert skipti, sem hún vex að nokkru ráði. En ætla má, að jökul- leirinn gangi nú brátt til þurrðar í efstu drögum árinnar, þar sem framleiðslu hans er nú hætt. Spá min, um að Helliskvísl mundi með tið og tíma lenda aftur í gamla farveginum sínum norðan við Lambafitjarhraun og renna eft- ir homnn til Tungnaár, rætist aldrei. Mér hafði sézt yfir það, að hraunið hafði ekki aðeins hrakið ána upp úr farveginum á 6 km kafla, heldur einnig bægt henni vestur af því svæði, sem til hans hallar. Fyrir bragðið á hún miklu lengri og torveldari leið ófama til að komast í ofanjarðarsamband við annað vatnsfall. Því miður er ég ófróður um áfanga Helliskvíslar á leið hennar frá lóninu við Lambafitjarhraun 1931 þangað, sem hún hefur endað nú síðustu árin. Allur sá kafli mun vera þurr á hverjum vetri, en á sumrin sækir áin fram aftur og flest sumur lengra en sumrinu áður. Samkv. korti Landm.st. endaði Helliskvísl austan við svon. Tagl, þegar flugmyndimar voru teknar, sumarið ’37 eða ’38, og hefur þvi sótt fram þann 6 km spöl á 6—7 árum. Þetta hefur verið mjög erf- iður áfangi, yfir Hekluhraunið gamla, sem ýmist er úfið og mis- hæðótt með dröngum og gjótum eða þakið vikmm. Þama hefur aldrei mnnið vatn áður og var þvi enginn farvegur fyrir. Víða kvíslast áin

x

Náttúrufræðingurinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.