Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 1977, Síða 8

Náttúrufræðingurinn - 1977, Síða 8
þangað aftur, gaus alhnikið um 70 m undan Iandi og myndaðist þar smá- eyja, sem ekki hlaut skírn, því hún varð brátt landföst. Norður af „eynni“ mátti greina nokkrar smá- vægilegar sprengingar og rná ætla, að gossprungan hafi náð að teygjast um 120 m út í sjó. Um kl. 09:30 var enn talsvert slettu- gos í syðstu gígunum, en þeir voru næstum hættir að gjósa kl. 11:25 og á syðsLu 300—400 nt gossprungunnar var gos búið að kalla mátti kl. 14:40. Hvenær sprungur opnuðust áfrarn í suður frá eldrásinni er ekki vitað annað en það, að nýjar sprungur náðu suður í Lambaskorur, er Þor- leifur Einarsson kom þar að síðdegis 24. janúar, og ég hygg, að við Hjálm- ar Bárðarson hefðum veitt þeint eftir- tekt, ef þær hefðu verið kontnar fyrir liádegi daginn áður. Er ég skoðaði þetta svæði laust fyrir hádegi 26. jan. ásamt Halldóri Ólafssyni, aðstoðar- manni mínum, mátti rekja 2 og sums staðar 3 samsíða sprungur, 10—12 cm víðar á köflum, niður í hamrana, sem Iiggja að Stakkabót að norðan. Þegar við stóðum þarna rétt á hádegi og horfðum til norðurs á gosmökk- inn, sem var ærið gjóskumettaður og ógnvekjandi, heyrðum við einhvern dynk að baki okkar, og er við litum við, sáurn við þrjá örlitla brúna stróka þeytast upp úr sjónum um 300 m undan ströndinni í gossprungu- stefnuna og mynduðust brúnir vikur- flekkir kringum þá á sjónum. Þarna höfðu orðið einhverjar sprengingar áður, því örmjó, brún vikurröst var meðfram fjörunni í Bótinni. Aftur varð sprenging eftir um mínútu blé, en síðan ekki söguna meir. Við 1 jið- um þarna alllengi, en aldrei varð aft- ur vart við gos þarna. Áður en þetta gerðist hafði orðið smágos neðansjávar að morgni annars dags gossins í stefnu gossprungunnar, þar nærri sem sú stefna sker vatns- leiðslurnar til Eyja SA af Ystakletti. Myndaðist þarna hryggur, sem reis 10—12 m yfir sjávarbotn, sent þarna var á um 40 m dýpi. Ekki eyðilögð- ust vatnsleiðslurnar og hefur því vart opnast sprunga að heitið gæti rétt undir þeim. Svo gerðist það 6. febrúar um kl. 22 að nýrri og stærri vatnsleiðslan til Eyja slitnaði eða lagðist sarnan, sam- tímis því sem rafmagnsstrengur til Eyja slitnaði, en strengurinn og vatns- leiðslan lágu þarna santsíða, með um 100 m millibili. Þetta var nálægt 320 m ASA af Klettsnefi, eða á næstum sama stað og gaus neðansjávar annan gosdaginn. Nú myndaðist þarna hryggur, sem náði jtann 7. upp í 19 nr dýpi, en lækkaði síðan niður á um 25 m dýpi og lenti svo að nokkru leyti undir hrauni. Ekki náðu neinar sprengingar þarna upp úr sjónum. Þótt merkilegt megi virðast, bilaði ekki eldri vatnsleiðslan, sem lá þarna á milli rafmagnskapalsins og nýrri vatnsleiðslunnar. En þar með var sprungumyndun ekki með öllu lokið. Síðar í gosinu, 1. mynd. Kort, er sýnir sprungur þær, er mynduðust í Heimaeyjargosinu 1973 og hvenær þær mynduðust. Dýptarlínur sam- kvæmt nýju, óbirtu korti Sjómælinga Is- lands. Dýpi í metrum. — Map showing llie fissures (rvhole drawn lines), that opened up during the Heimaey eruption and the dates of their formation. Cable and pipe lines are dotted and dashed. Depth in m. 2

x

Náttúrufræðingurinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.