Samvinnan


Samvinnan - 01.12.1940, Page 10

Samvinnan - 01.12.1940, Page 10
SAMVINNAN 10. HEFTI aðalfund, og er tala fulltrúanna hátt á annað hundr- að. Aðalfundur kýs níu manna félagsstjóm. Félags- stjórnin kýs þriggja manna framkvæmdastjóm, og er forstjórinn þar talinn með. Síðan greinist reksturinn í fjórar meginstarfsdeildir með fulltrúa fyrir hverri deild undir daglegri stjórn forstjórans, Jens Figved. Þykir hlýða að gera hér nokkm nánari grein fyrir starfsdeildunum og forstöðumönnum þeirra. Jens Figved forstjóri er fæddur á Eskifirði 11. maí 1907, sonur Andresar Figved kaupmanns þar og konu hans, Marie Figved. Foreldrar hans eru bæði norsk. Figved er því að foreldri og uppruna óblandaður Norð- maður. Hann er eigi að síður ósvikinn íslendingur og mun vissulega verða skipað í flokk þeirra lands- manna, sem fremstir hafa reynst um dugnað og mannkosti. Hann hefir til að bera miklar skipulags- gáfur, manna vinsælastur, skapdeildarmaður mikill, en einarður og óhvikull um stefnumið og mjög til for- ystu fallinri. — Þess hefir verið getið hér að framan, hversu Figved gerðist forvígismaður P. V. R. og bjó sig undir starf sitt sem forstjóri Kaupfélags Reykja- víkur og nágrennis. Vöruflokkunin. Söluvömr félagsins eru greindar í flokka, sem eru auðkenndir með bókstöfum, eins og hér segir: A-flokkur: Matvörur og nýlenduvörur. B-flokkur: Álnavömr, skófatnaður, búsáhöld o.fl. C-flokkur: Kjöt og aðrar sláturafurðir. í kaflanum „Félagsdeildir“ hér að framan er gerð Húseign KRON á Hverfisgötu 52. Geymsla, búð og efnagerð. grein fyrir fulltrúastarfi Guðmundar Tryggvasonar, sem hefir einkum með höndum þann þátt starfsins, sem horfir til aukinnar félagshyggju og fræðslu meðal almennings í félaginu. — Umsjá með vörusölu I fram- angreindum vöruflokkum er falin tveimur fulltrúum, þeim Jóni Einarssyni og Hermanni Á. Hermanns- syni. Jón Einarsson er fæddur í Vestmannaeyjum 27. júll 1912; sonur Einars M. Einarssonar skipherra og Magn- úsínu Eyjólfsdóttur. Hann gerðist starfsmaður hjá P. V. R. frá byrjun. Stundaði hann nám í Samvinnu- skólanum og sótti auk þess námskeið í starfsmanna- skóla sænsku samvinnufélaganna í Stokkhólmi. Jón Einarsson hefir umsjá með A- og C-flokks vörum fé- lagsins (Sjá skipulagsuppdrátt: Neyzluvörur). Hann annast inn innkaup allra þessara vara og hefur um- sjón og eftirlit með þeim 11 sölubúðum, sem selja mat- vörur og kjötvörur. Hann sér og um allt það, er lýtur að smekkvíslegum og hagfelldum rekstri sölubúðanna. Hermann Á. Hermannsson er fæddur að Kjama- stöðum í Dýrafirði 25. ágúst 1902, sonur Hermanns Kristjánssonar sjómanns og konu hans, Jónínu Haf- liðadóttur. Hann stundaði nám í Verzlunarskólanum í Reykjavík, rak sjálfur verzlun í 10 ár og vann verzl- unar- og skrifstofustörf á nokkrum öðrum stöðum, áður en hann í júlí 1936 gerðist starfsmaður hjá P. V. R. — Hermann Hermannsson hefir umsjá með B,- flokksvörum félagsins (Sjá skipulagsuppdrátt: Sér- deildir). Hann hefir með höndum samskonar störf og ábyrgð gagnvart rekstri þeirra þriggja búða, sem eru undir hans umsjá og talin eru hér að framan í kafl- anum um Jón Einarsson. Auk 14 sölubúða rekur félagið iðnað i þremur grein- um: Efnagerð, pylsugerð og saumastofu, og skiptast þær rekstursgreinir samkvæmt tegundum fram- leiðsluvaranna til umsjár áðurgreindra tveggja sölu- fulltrúa. Samkvæmt framansögðu rekur félagið alls 14 sölu- búðir, — 10 í Reykjavík, tvær í Hafnarfirði, eina 1 Keflavík og eina í Sandgerði. Fyrir hverri búð stend- ur ábyrgur sölustjóri, og verður síðar nánar greint frá viðhorfi þessara söludeilda og reikningsskilum til skrifstofu félagsins. Ólafur Þorsteinsson er hinn fjórði fulltrúi félagsins og hefir með höndum skrifstofustjórn og gjaldkera- störf. Hann er fæddur að Holti í Mjóafirði 25. okt. 1906, sonur Þorsteins Sigurðssonar sjómanns og konu hans, Ragnhildar Hansdóttur. Hann réðist til Kron stuttu eftir stofnun félagsins, en hafði áður unnið verzlunarstörf víðar en á einum stað. Hann hefir með höndum umsjá reikningshaldsins, vörueftirlitsins og 158

x

Samvinnan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.