Samvinnan - 01.06.1946, Page 12
SAMVINNAN
6. HEFTI
JDRUNN ÓLAF5DDTTI R, 5ÖRLA5TÖÐUM :
^3 ^J3úámœ$rcióhó i
ctnum ct
X
ctugum
XJm herbergi þessi ég hugfangin geng,
því hér birtir yndið sín völd, —
hér litskreyttan refil og renning má sjá
og rósofin klœöi og tjöld.
Hvert vetrarskeið efnileg ungmeyjasveit
hér unir við verklega mennt..
Hið andlega gull mun þó einnig hér kynntr
og öllum til dáða er bent.
Af listrœnum dúkum og dreglum er nóg
og dragtjöldum lokrekkju við. —
Og hillur og bríkur hér víðsvegar um, —
þcer vitna um fjölhœfan smið. —
— Þœr sitja við ylríka arininn hér,
þá úti er myrkur og fjúk,
og blómsveiga skapa með skyttu og nál
í skrautlegan refil og dúk.
Hér þjóðlegir stólar og þilkistur sjást,
því þjóðlegan svip hér allt ber.
Og veggina myndir og málverk fá skreytt,
og markvert er bókasafn hér.
Og húsmunur sérhver um hugvit ber vott
og heilbrigðan listsmekk og snilld.
Hið fjölbreytta skraut prýðir fölskvalaus blœr
— sú fegurð, sem hrein er og mild.
Um hugskotoið ylur og unaður vefst,
er augað þá blœfegurð sér.
Menn getur um fjölmargar dásemdir dreymt
í dísahöll þessari hér.
Hver einasta mey, sem í uppvexti fœr
þá auðnu að hljóta hér vist,
hún œtti hér ósviknum þroska að ná
og auðgast að þjóðlegri list.
— Þú ágœti skóli ert sýslunni sœmd,
þú sendir þín áhrif svo vítt. —
Sé blessuð sú mund, er þig mótaði fyrst
og mest hefur eflt þig og prýtt.
Og heill sé þeim öllum, sem helga þér starf
með heiðri á framtíðarbraut. —
Ég bið þess, að œ verði blœhreint þitt nafn
og bjart um þitt þjóðlega skraut.
Jórunn Ólafsdóttir,.
Sörlastöðum..
172