Samvinnan - 01.06.1946, Qupperneq 16
SAMVINNAN
6. HEFTI
Það var orðið framorðið, þegar við lögðum loks-
ins á stað frá Húsavík, en við riðum býsna hart og
náðum inn að Geitafelli, innsta bæ í Reykjahverfi,
en þar bjó þá góður kunningi Jakobs, sá er Snorri
hét Oddson. Það var háttprúður, hógvær greindar-
maður. Lítið þekkti ég hann um kveldið, er ég kom
til hans, en morguninn eftir vorum við orðnir góðir
mátar og vorum það ætíð síðan. Við Snorri vöktum
við það um nóttina að leita í reikningum allra við-
skiptamanna félagsins að peningum þeim, sem Jakob
hafði veitt móttöku fyrir félagsins hönd, og hann
áleit, að nokkuð hefði týnzt af. En nú kom það í ljós,
að ekkert af þeim var glatað, en sjálf félagsstjórnin
var orsök í þeirri ringulreið, er olli Jakobi mestrar
áhyggju. Næsta dag. var Jakob hressari, hafði hvort
tveggja, ferðalagið og fullvissan um, að engin yfirsjón
hefði átt sér stað, viljað honum til og unnið það
á, að hann svaf betur um nóttina og leit djarfari aug-
um á framtíð félagsins, því að annað gat hann naum-
ast hugsað um. Á leiðinni upp yfir Hólasand sagði
hann mér, að hefði sér mislukkast afgreiðsla á pen-
ingum félagsins, þá hefði fleira getað farið eftir því,
og hann hefði þá alls ekki talið sig vera færan um
að stjórna félaginu framvegis, en þann vanda hafði
hann á hendi til hárrar elli og var jafnan öruggasti
maðurinn, þótt á móti blési. Afhallandi miðjum degi
vorum við komnir upp á Grímsstaði, og sat ég þar
fram á vetur við að skrifa reikninga viðskiptamanna
félagsins. Hafði líka máske dálítil hjáverk, því trú-
lofaður var ég elztu dóttur Jakobs. Haustið eftir,
1883, unnum við Jakob sömu verkin saman á Húsa-
vík, en þá var orðið hægara við að fást, því að
komnar voru upp dálitlar félagsbyggingar, sem fór
árlega fram, þangað til að allt var komið á réttann
kjöl“.
Þetta er þá frásögn Friðriks um áhyggur Jakobs
haustið 1882. Eins og hann segir urðu þeir síðbúnir
af Húsavík og komu hingað í myrkri 24. október, sem
var þriðjudagurinn fyrsti í vetri. Á miðvikudaginn
var Jakob lasinn og klæddi sig ekki fyrr en úr há-
degi. Var hann þá, eins og Friðrik lýsir honum, ann-
ars hugar að sjá og gat ekki á heilum sér tekið, talaði
fátt og gat lítils neytt. — Það var verið að lóga fé
fyrri part dagsins, og gat pabbi ekki verið inni hjá
Jakob eða talað við hann. Eftir miðdaginn spurði
faðir minn Jakob, hvort hann vildi lofa sér að líta
í reikningana. Já, það var svo sem hægt, en það væri
ekki til neins. — Þá voru reikningsplögg þeirra sótt,
og þeir settust við að skoða þau, faðir minn og Frið-
rik. Við þau sátu þeir svo, það sem eftir var dags-
ins, og þegar kveikt var um kvöldið, gátu þeir sagt
Jakob það, að ekki myndu ástæðurnar vera eins al-
varlegar og hann væri hræddur um. Þetta kveikti
þegar vonarneista í brjósti Jakobs, og héldu þeir svo
áfram að telja kjark í hann. Leið ekki á löngu, þang-
að til að hann vildi fá eitthvað að gera. — Honum
var þá fengin ull og kambar, og fljótt varð hann
annar maður að sjá. Man ég ekki eftir, að ég hafi
séð meiri breytingu á jafn gætnum manni en orðin
var á Jakob um kvöldið. Ég man ekki, hvort þeir
vöktu við reikningana um nóttina, eins og Friðrik
segir, en það hefur þá verið seinni nóttin, sem þeir
voru hjá okkur. Kvöldið, sem þeir komu, settust allir
að. — Það skilst líka á því, sem Friðrik segir, að hann
hafi sofið betur um nóttina bæði fyrir ferðalagið og
fullvissuna um, að engin yfirsjón hefði honum viljað
til. Þá vissu gat hann varla fengið svo fljótt fyrra
kvöldið, að hún gæti hjálpað til svefns þá nótt. Og
þegar þeir fóru héðan á fimmtudagsmorguninn, var
Jakob glaður, og þeir allir, er þeir voru að skilja úti
á hlaðinu í Geitafelli.
Er af þessari framanrituðu frásögn ljóst, að öll-
um áhyggjum Jakobs út af peningagreiðslu hans til
félagsmanna var lokið, áður en hann kom upp í
Grímsstaði. Hann þurfti ekki heldur að fara upp í
Mývatnssveit til þess að hljóta traust almennings.
Það átti hann óskipt í öllum sveitum. Það sést einnig,
að hann naut mestrar og beztrar aðstoðar Friðriks
við afgreiðslu allra reikninga til félagsmanna og
þeirra annarra manna, er hann hafði haft einhver
viðskipti við fyrir félagsins hönd.
í dagbók sína hefur faðir minn ekki skrifað neitt
um það, sem olli þunglyndi Jakobs, né um það, að
þeir Friðrik hafi leitað í reikningum félagsmanna að
týndu fé og fundið það, og finnst mér það vera glögg-'
ur og góður vitnisburður um manninn. Aðeins sagt á
þriðjudaginn: „Jakob kom“, og á fimmtudaginn:
„Jakob fór“. Hins vegar man ég vel eftir þessum
fyrstu árum félagsins, og mér fannst pabbi vera lengi
að heiman stundum. Þegar hann fór ferðina upp í
Sveitina með Benedikt og verið var að tala um að
panta skipið að vetrarlaginu, þá var hann sex daga
í ferðinni. Það var líka fleira en kaupfélagsmálin,
sem voru orsök í fjærveru hans frá heimilinu. Það
voru líka málefni gamla Helgastaðahrepps, þar sem
hann vaar oddviti, þjóðliðsmál og svo heimilisþörf,
er knúðu hann til burtfarar, en ég þurfti fljótt að
fara að reyna að „gera í húsum“, þegar pabbi var
ekki heima. —
Á blaðsíðu 73 í Sögu K. Þ. er kafli, sem höfundur-
inn nefnir „Bjargráðið“. Seinasta málsgreinin er
vissulega ánægjulegur vitnisburður um árangurinn
af því starfi og þeirri viðleitni, sem frá er sagt í
þeim þætti sögunnar. Það er ekki ofmælt hjá höf-
undinum, er hann segir, að þá hafi orðið eftirminni-
legur fögnuður. Þó voru ekki allir örðugleikarnir
búnir, þótt skipiö væri komið.
Það kom til Húsavíkur í hægu hríðarfjúki um
miðjan dag, laugardaginn 2. apríl. Litlu síðar en það
lagðist á höfnina fór að hvessa á austan, sem er
versta átt á Húsavík. Þó var strax farið að flytja úr
skipinu á litlum róðrarbátum, önnur tæki voru þá
ekki til, og skipið lá langt undan landi. — En Hús-
víkingar sýndu það þá, eins og endranær, að þeir
eru góðir sjómenn. Á sunnudaginn var austan hríð
og hvasst og vont í sjóinn. Þó var allan daginn flutt
úr skipinu. Á mánudaginn var norðanhríð og mikið
frost. Þann dag voru einnig fluttar vörur í land.
Bjartara seinni partinn. Um kvöldið voru eftir 500
tunnur af korni. — Þá hélzt skipstjórinn ekki leng-
ur við á höfninni, og þóttist aldrei hafa verið þar
óhultur, en sigldi burt með kornið. Það var svo í
176