Samvinnan - 01.06.1946, Page 18
SAMVINNAN
6. HEFTI
&J. ur
BókaflóSið rennur ekki í jafn stríðum straumum á
útmánuðum og vori eins og fyrri hluta vetrar. En ekki
er enn um neina kyrrstöðu að ræða í þessum efnum.
Prentsmiðjum fjölgar stöðugt, og alls staðar er unnið
með miklum dugnaði að því að koma sem
mestu prentuðu máli á markaðinn. Þegar
kreppan skellur á, eftir nýafstaðið stríð, mun
bókaeign íslendinga verða eitthvert merki-
legasta fyrirbæri veraldarinnar. Að vísu er
margt af því, sem út er gefið, ekki á marga
fiska, og ýmsir þeir, sem safna bókum, gera
það af yfirlæti, til að geta bent á margar
hillur og gylta kili. En þetta eru undantekn-
ingar. íslendinga hungrar eftir bókum, og
hafa nú getað fullnægt þeirri löngun betur
en áður. Að öllu samtöldu bendir hin stór-
kostlega bókaútgáfa íslendinga á vakandi,
andlegan áhuga, sem eru dýrmætir eigin-
legar fyrir hverja þjóð.
En á sviði listarinnar hefur gerzt einn
merkisatburður. Einar Jónsson myndhöggv-
ari hefur haldið upp á byrjun áttræðisald-
ursins með því að fullgera eitt af sínum
mestu listaverkum, sem mun lengi verða til
að auka frægð hans og hróður íslenzkrar
höggmyndagerðar. Einar Jónsson hefur í list
sinni, einkum á síðari árum, tekið til með-
ferðar dulræn og trúarleg efni. En nú hefir
hann gert volduga, áhrifamikla og tignar-
lega Kristsmynd, sem mun taka virðulegt
sæti meðal hinna óteljandi Kristsmynda í
heimslistinni. Engin lýsing gefur nógu full-
komna hugmynd um þetta merkilega lista-
verk. Menn verða að kynnast því, fyrst
af myndum og síðan með eigin augun,
þegar lokið verður viðgerð á listasafninu og
það opnað fyrir almenning næsta haust.
J. J
Kristsmynd Einars Jónssonar.
178