Samvinnan


Samvinnan - 01.05.1947, Síða 8

Samvinnan - 01.05.1947, Síða 8
Konur námumannanna koma í klubbinn tii þess að spjalii og drekka glas af léttu öli. Þeim er œtluð sérstök stofa. Svona hvelFingar eru margar á vinnslusvæðinu. Þarna herja loftborar án afláts á kolalögin. Stór stykki falla til jarðar úr veggjunum, og þeim er skipt f minni hluta, áðuf en þeim er skipað á vagnana. Auk vélknúinna verk- færa getur að líta þarna venjuleg hand- verkfæri. Námamennirnir taka sér andartaks hvíld til þess að líta á gest- ina, en síðan er tekið til starfa á ný. Við grípum handverkfærin og hyggj- umst losa með þeim úr svörtum lög- unum, en það sækist seint. Iður jarðar eru hörð viðkomu, og lítið fellur. Námamennirnir brosa góðlátlega. Svona peyjar eiga lítið erindi í kola- námu, hugsa þeir. Og það er satt, við eigum næsta lítið erindi. Þar áð auki eru' flestir búnir að fá nóg. Það er daunninnþarnaniðri, sem óviðkunnanlegastur er. Nú dreymir okkur alla leikmennina um heiðríkju og sólskin og hreint, tært loft. Við erum alls hugar fegnir, þeg- ar verkstjórinn bendir okkur, að tími sé korninn að halda af stað til baka. Við verðum að vera komnir upp á yfirborðið áður en vaktaskiptin fara fram, svo að þetta ráp okkar tefji ekki störf þeirra, sem eru meira virði í aug- um kolanámueigendanna en forvitnir gestir, sem að garði ber. HVERS konar menn eru það, sem fást til að starfa í þessum óvist- legu undirgöngum ár eftir ár? „Þeg- ar eg var ungur,“ sagði einn þeirra, ,,var enga aðra vinnu að fá. Og þetta er kolavinnsluhérað. Og þá voru sam- göngurnar ekki komnar í það horf, sem nú er. Þá gátu menn ekki sótt vinnu sína langt út fyrir heimkynni sín. Við áttum engra kosta völ. En nú er allt breytt. Nú getur unga fólkið leitað sér atvinnu í nærliggjandi borg- um og byggðum og samt viðhaldið tengslunum við fjölskyldur og vini. Nú fer unga fólkið ekki í námurnar.“ Og brezka þjóðin reyndi það á vetr- inum, sem leið, að straumur unga fólksins hefur ekki legið í námurnar á liðnum áratugum. Þá skorti kol, meðal annars af því, að skorti menn. Og þessi þróun er naumast nokkur furða. Námulífið er ekki glæsilegt. Einn námumannanna skýrði þannig frá því: „Slitvinnan og lífshættan eru ekki það versta, heldur myrkrið. Námumaður lifir mest alla ævina í myrkri. Eg fer á fætur klukkan fimm að morgni, og það er ennþá dimmt, þegar eg byrja vinnu klukkan sjö. Þar næst er dvalið neðanjarðar til klukk- an tvö síðdegis. Þá eru vaktaskipti. Þegar eg loksins er kominn lieim, er eg orðinn svo þreyttur, að eg verð að halla mér í eina tvo, þrjá tíma. Þega1 eg vakna, er orðið dimmt. Eg anó;1 aldrei að mér hreinu lofti eða sé sób ina, nema þá sjaldan, hún skín :l sunnudögum.“ Saga lians er saga flestra námamanna í Eretlandi. Fæstn þeirra ætluðu sonum sínum að feta 1 fótspor feðranna. Þess vegna vaknað1 brezka þjóðin einn góðan veðurdag við vondan draum. Hún átti fáa unga námumenn, og þó var kolavinnslan undirstaða alls atvinnulífs í landim1- Þá var þörf róttækra aðgerða. BREZKU námurnar höfðu frá upP' liafi verið í einstaklinga eigu, °8 starfræksla þeirra liafði verið há® gróðavoninni fremur en lífsnauðsy11 landsins að viðhalda þessum iðnað’- Þegar árið 1937 voru flestir nánu1' menn stuðningsmenn Verkamanna' flokksins. Hann hafði þjóðnýting11 námanna á stefnuskrá sinni. Meiri af' skipti þjóðfélagsins af þessari skugg3' legu atvinnugrein voru nokkur hug' hreysting í augum þeirra. Fyrst nan1' urnar voru svona lífsnauðsynlegar fV1' if þjóðfélagið, varð þjóðfélagið að g£t;1 eitthvað fyrir námumennina og nánu1' reksturinn. Stríðið stöðvaði alla þróuU (Framhald á bls. 14) 8

x

Samvinnan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.