Samvinnan - 01.06.1950, Side 11
liafa reynslu í að stjórna, þýðir það
stjórn fyrir þjóðina, en ekki að stjórn-
að sé af þjóðinni. En það þýðir alls
■ekki það sama og hin ólýðræðislega
stofnun: brezka þingræðisskipulagið.
Góð stjórn er möguleg því aðeins að
stjórnendurnir séu mikilhæfir menn
með sérstaka hæfileika til þess að
stjórna. Slík stjórn getur aðeins verið
lýðræðisleg, ef þjóðin getur, með
stuttu millibili, kosið í milli slíkra
frambjóðenda. Vandinn er sá, að ekki
er til áreiðanleg, vísindaleg aðferð til
þess að aðgreina sauðina frá höfrun-
um.“
Ítalía: Brauð og vinna.
Á Ítalíu, þar sem sumir minnast
stjórnarára Mussolinis enn með trega,
var viðkvæðið æði oft: Þá voru betri
tímar fyrir okkur. Fjöldamargir höfðu
aðeins óljóst hugboð um lýðræði. Yms-
ir prófessorar og business-menn sögðu
sem svo: „ítalið þekkja lítið til aga.
Við þörfnumst lýðræðis, en þó ennþá
fremur sterkrar handar til þess að
leiða okkur.“
Einn maður var samt ekki fíkinn í
liina sterku hönd. Það var hvíthærður
próf. í Flórenz, sem setið hafði í tugt-
húsinu í 20 ár fyrir að berjast á móti
því, sem Mussolini kallaði „æðra lýð-
ræði“ á velmaktardögum hans. Þessi
prófessor var að horfa á kommúnista-
fylkingar fara í hergöngu um göturn-
ar, hrópandi: Togliat-ti, Togliat-ti
fnafn ítalska leiðtogans) og veifandi
rauðum fánum. „Hér er aðeins stigs-
rnunur, ekki eðlismunur,“ sagði pró-
fessorinn. „Áður hrópuðu þeir: Duce,
Duce.“ „Leiðin til viðreisnar fyrir
Ítalíu er starf að framför, ekki óljóst
kommúnistískt öryggi,“ sagði hann.
OKKRUM MÍLUM fyrir vestan
LN Róm búa 2000 leiguliðar á 10.000
ekru herragarði. Frú Maria Dacoli
hafði orð fyrir fjölskyldu sinni. Þau
eru fimm talsins. Eins og flest bænda-
fólk á Jressum slóðum, gerði hún
krossmark fyrir sér, er kirkjuklukkur
hringdu. í hennar augum fylgdi !ýð-
ræðinu eitt, sem sjaldan er minnst á:
trúfrelsi. „Það er ekkert lýðræði án
þess,“ sagði hún.
Leiguliðinn Salvatore Rossi, komm-
únisti að stjórnmálaskoðun, í launa-
flokknum 150 krónur á mánuði, sagð-
ist ekki vita hvað lýðræði væri, og
Eleanore Roosevelt.
heldur ekki vita neitt um Marshall-
áætlunina. „Stjórnin ætti að segja
okkur það, við erum hvort eð er ekkert
nema fé í rétt,“ sagði hann. Antonio
Scarabello, flokksbróðir hans, á sama
bæ, var ofurlítið fróðari: „Lýðræði er
stjórnarfyrirkomulag, sem gerir verka-
fólki mögulegt að sækja fram, eins og
í Rússlandi. Það þýðir brauð og
vinnu.“
Grikkland: Að eiga sinn hest.
Fyrir handan Eyjahafið, í Grikk-
landi, er lýðræðið nátengt fæði og
skæði í hugum fólksins, alveg eins og á
Italíu, og þeim atburðum, sem rændu
þessum lífsnauðsynjum frá því. Marg-
ir bændur og verkamenn í báðum
löndunum höfðu einfalda skýringu á
reiðum liöndum: „Að vinna og lifa.“
Borgarastríð geysaði í landinu, í aug-
um margra var „góð ríkisstjórn“ sú,
sem útvegaði atvinnu og brauð. Mann-
réttindi og frelsi bar sjaldan á góma.
Undantekningar frá þessu var ]ró að
finna í æðstu embættum landsins.
George Papandreou, fyrrv. forsætis-
ráðherra og leiðtogi stjórnarandstöð-
G. Bernnrd Sliaw.
unnar, sat á svölum liúss síns í Aþenu
og horfði á kvöldsólargeislana á Hy-
mettus-fjalli. „Þetta er Grikkland,"
sagði hann og benti í átt til sólarlags-
ins. „Margar aldir styrjalda og blóðs-
úthellinga og eymdar, en síðan nokkur
dásamleg augnablik friðar og velmeg-
unar. Lýðræðið mun rísa á legg á
ný.“ Svar hans við spurningunni var
þetta: „Lýðræði er réttur meirihlut-
ans að stjórna og minnihlutans að
gagnrýna. Hið síðarnefnda er mikils-
verðara. Eins og nú standa sakir, er eg
ekkert hrifinn af stjórn meirihlutans,
en eg sætti mig við hana.“
Þemistókles Sófoulis, jráv. forsætis-
ráðherra, var af auðskiljanlegum
ástæðum miklu hrifnari af stjórn
meirihlutans þá stunclina. Hann
brosti, þegar við lögðunr spurninguna
fyrir hann á skrifstofu hans í stjórnar-
ráðinu: „Rétturinn til þess að skamma
náungann er ein meginstoð lýðræðis-
ins. Líklegast þekkið þið það ekki í
Bandaríkjunum, að blaðamenn
skammi ríkisstjórnina eins og þeir
gera hér. Raunar er ekki hægt að
skamma að gagni á öðru tungumáli en
11