Samvinnan - 01.06.1950, Page 16
ÞJÓÐLEGUR IÐNAÐUR
Stutt frásögn af starfsemi Fataverkí
PRJÓNASKAPUR OG VEFNAÐUR eru elztu og
þjóðlegustu iðngreinar hér í landi. Allt fram á síð-
ustu áratugi var það eitt meginstarf húsmæðra og starfs-
liðs þeirra, að prjóna og vefa fatnað á landsmenn. Allt
þetta verk var unnið í höndunum, hráefnið var íslenzka
ullin, fatnaðurinn var sterkur og sérlega hentugur í ís-
lenzkri veðráttu. Listfengi margra karla og kvenna naut
sín og ágætlega í ýmsum heimilisiðnaði af þessu tagi. En
með nýju mtímum koma ný viðhorf. Eftir komu hinnar
tæknilegu byltingu, sem orðið hefur hér á landi síðustu
áratugina, varð ógerlegt að sjá landsmönnum fyrir fatn-
aði með þessum hætti. Erlendu efnin gerðust þá algeng-
ari hér, en jafnframt því var tekin upp ný tækni i nýtingu
íslenzku ullarinnar. Undirstaða þess var bygging ullar-
verksmiðja norðanlands og sunnan, en þýðingarmesta
átakið var endurskipulagning Gefjunar fyrir framtak
samvinnumanna, og stórframleiðsla á dúkum og bandi úr
íslenzkri ull. Á síðari árum hafa orðið stórfelldar fram-
farir í nýtingu íslenzku ullarinnar, og þjóðin stendur nú
á þröskuldi nýs tímabils í þessum málum. Ný Gefjun,
stærri og fullkomnanri en hin eldri, er að rísa upp. Með
henni mun kom enn betri tækni og fullkomnari vara úr
íslenzku ullinni.
í RIÐ 1942 HÓF UNGUR maður á Akureyri að starf-
rækja prjónastofu og vélprjóna peysur og sokka úr
íslenzku bandi. Hann hafði þegar mikinn áhuga fyrir því
að nota sem mest af íslenzku hráefni og tókst þegar góð
samvinna milli hans og Gefjunar. Það kom fljótt í ljós, að
það var mjög hagkvæmt og eðlilegt fyrir slíkt fyrirtæki að
vera í nánu sambandi við fullkomnustu uliarverksmiðju
landsins. Forráðamenn vcrksmiðjunnar og Sambands
ísl. samvinnufélaga höfðu einnig áhuga fyrir því, að efnt
yrði til meiri framleiðslu fullunnra vara úr íslenzku
bandi en hægt var í hinni litlu prjónastofu. Varð þá að
samningum, að Samband ísl. sámvinnu-
félaga keypti prjónastofuna og réði fyrir
forstöðumann hinn unga mann, sem
byrjað hafði á þessari framleiðslu. Hlaut
fyrirtækið nafnið Fataverksmiðjan
Hekla. Framkvæmdastjóri hefur verið
frá upphafi Ásgrímur Stefánsson. Þessi
kaup voru gerð snemma á árinu 1948 og
á sama ári fékk verksmiðjan til umráða
stóraukin húsakynni í hinu nýja verzlun-
arhúsi KEA við Hafnarstræti 93 á Akur-
eyri. Með kaupunum gekk Sambandið
inn í vélapantanir, sem eldra fyrirtækið
hafði gert fljótlega upp úr stríðslokum,
með það fyrir augum að auka framleiðsl-
una og gera hana fjölbreyttari. Jafnframt
var undinn bráður bugur að meiri véla-
kaupum. Nú fyrir skömmu eru flestar
þessar vélar uppsettar og teknir til starfa.
Efri mynd: Hafnarstræti 93 á Akureyri. Þar er Fataverksmiðjan Hekla til húsa, á 2. 1
hæð. Húsið er nýtt, eign Kaupfélags Eyfirðinga. Salarkynni eru björt og rúmgóð, verk-
smiðjureksturinn með nýtízku brag. Neðri mynd: Ásgrímur Stefánsson framkvæmda-
Sjyóri á skrifstofu sinni. Hann hefur veitt fyrirtækinu forstöðu frá stofnun þess. —