Samvinnan


Samvinnan - 01.06.1950, Qupperneq 31

Samvinnan - 01.06.1950, Qupperneq 31
r Samvinnuritin eru gagnleg hverjum þeim, sem ætlar að taka virkan þátt í starfi kaupfélaganna Bókaútgáfan NORÐRI hóf útgáfu bókaflokksins „Samvinnurit“ árið 1948. — Alls hafa fimm bækur komið út í þessum bókaflokki. Þau samvinnurit, sem þegar eru komin út, eru: FJÁRHAGSLEGT LÝÐRÆÐI eftir Anders Öme ATVINNULÝÐRÆÐI eftir Folke Fridell Þetta er fyrsta og annað samvinnuritið prentað í einni bók. Eru þetta stuttar, snjallar, efnis- ríkar og vel skrifaðar ritgerðir um þjóðskipulagsmál og nokkur félags og efnahagseinkenni sam- vinnufélaganna. — Verð kr. 22.00 ib. SAMVINNA BRETA í STRÍÐI OG FRIÐI Bók þessi er eftir hinn gamalkunna sænska íslandsvin, Thorsten Odhe, sem m. a. hefur skrifað bók um Island, og er nú framkvæmdastjóri Alþjóðasambands samvinnumanna. Bókin er glögg og skemmtileg frásögn af ferð höfundarins um Bretland á stríðsárunum. Greinir hún m. a. frá heimsóknum hans hjá mörgum brezkum samvinnufélögum, en einnig er þarna að finna fróðleik um sögu samvinnufélaganna í Bretlandi. — Verð kr. 20.00 ib. HANDBÓK FYRIR BÚÐARFÓLK Þetta er bók, sem hver einasti starfsmaður kaupfélaganna þarf að eiga, lesa og læra. Þeir Gísli Guðmundsson, alþingismaður, og Þorvarður Ámason, verzlunarstjóri, þýddu og endursögðu þetta rit úr sænskum og norskum bókum. Þama er að finna sérstaklega haldgóðar upplýsingar um rekstur búða. Bókin er prýdd fjölda mynda. — Verð kr. 35.00 ib. ÞEIR HJÁLPUÐU SÉR SJÁLFIR Bókin er sjálfsævisaga írska samvinnumannsins Patrick Gallagher, sem með þrautseigju sinni, bjartsýni og dugnaði, hjálpaði samborgurum sínum til þess að hjálpa sér sjálfir með því að hjálpa hver öðrum. Þetta er óvenju skemmtileg og hrífandi bók, og jafnvel spennandi eins og hinar beztu skáldsögur. — Verð kr. 30.00. SAMVINNUFÉLÖG í NORÐURÁLFU Jón Sigurðsson frá Yztafelli og Gísli Guðmundsson alþingismaður, tóku þessa bók saman með hliðsjón af ýmsum erlendum samvinnubókum og ritgerðum. Bókin er haldgott yfirlit yfir þróun samvinnunnar og samvinnuhreyfingarinnar frá upphafi og fram á vora daga. — Verð kr. 32.00. Samvinnumenn, munið að Samvinnuritin eru gagnleg hverjum þeim, sem ætlar að taka virkan þátt í starfi kaupfélaganna. Samband íslenzkra samvinnufélaga, Reykjavík

x

Samvinnan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.