Samvinnan - 01.11.1951, Síða 14
Harry Ferguson og uppfinningar
hans á landbúnaðarvélum
Þegar brezka ríkisstjórnin hafði
neyðzt til þess að lækka gengi sterl-
ingspundsins haustið 1949, og menn
biðu þess með nokkrum kvíða, að
verðlag tæki að hækka, en kaupkröf-
ur sigldu í kjölfar þess, reyndi einn
maður að sýna þjóð sinni og ráða-
mönnum hennar fram á, að hægt væri
að snúa þeirri þróun við. Þessi mað-
ur hét Harry Ferguson, og hann hélt
því fram, að hægt væri að lækka
framfærslukostnaðinn um 20% með
því að taka upp nýtízku aðferðir í
landbúnaði. Sagði hann, að ástæðan
fyrir því, að Bretar ekki ræktuðu
nægilega rnikið af matvælum sínum
sjálfir, væri sú, að milljónir ekra væru
ekki nýttar, en fornfálegar starfsað-
ferðir látnar viðgangast, treyst á
handafl og dráttardýr.
Harry Ferguson hélt ekki fram
þessum skoðunum út í bláinn. Hann
hafði gert það að ævistarfi sínu að
finna upp og framleiða fullkomnari
tæki fyrir bændur, ekki aðeins í
heimalandi sínu, heldur og um allan
heim. Hann hafði gerbreytt notkun
dráttarvéla með hinu svonefnda
„Ferguson-kerfi“ og smíðaði léttari,
ódýrari og hentugri dráttarvélar en
áður höfðu tíðkazt.
Ferguson er Iri, fæddur 1884 á bæ
í Downsveit í Norður-Irlandi. Hann
fékk áhuga á vélum hvers konar þeg-
ar á barnsaldri og sextán ára gamall
setti hann upp í Belfast viðgerða-
verkstæði fyrir bifreiðar og bifhjól,
sem raunar var ekki mikið til af alda-
mótaárið. Hann eignaðist sjálfur bif-
reið og tók þátt í margvíslegum kapp-
akstri í henni. Frá bifhjólum og
bifreiðum beindist athygli hans að
flugvélum og árið 1909 smíðaði hann
sér flugvél. Var það hin fyrsta, sem
flaug yfir Irlandi, og hann varð fyrsti
Breti, sem smíðaði og flaug sinni eig-
in flugvél.
Harry Ferguson.
Þegar fyrri heimsstyrjöldin brauzt
út, fólu stjórnarvöldin Ferguson að
hafa á hendi stjórn og eftirlit allra
laíidbúnaðarvéla í írlandi. Var þetta
mikið verk, þar sem erfiðir tímar
voru framundan, en þjóðinni lífsnauð-
syn að halda við og auka framleiðslu
landbúnaðarafurða, enda þótt fjöldi
vinnufærra manna væri kallaður til
herþjónustu. Þetta starf olli tímamót-
um í ævi Harry Fergusons.
Það fyrsta, sem Ferguson tók eft-
ir, var að landbúnaður í Irlandi, og
raunar um allan heim, byggðist á afli
dráttardýra, en til þess að fóðra þessi
dráttardýr þurfi væna skák af
hverju býli. Hann komst og á þá
skoðun, að nægileg íramleiðsla mat-
væla væri lífsnauðsyn hverri þjóð og
heilbrigðir búnaðarhættir væru und-
irstaðan undir heilbrigðum atvinnu-
háttum allrar þjóðarinnar. Og loks
komst hann á þá skoðun, að beizlun
véltækninnar í þágu landbúnaðarins
væri eina leiðin til þess að tryggja þær
framfarir í þeim atvinnuvegi, sem
nauðsynlegar væru, ef takast ætti að
útrýma hungri og eymd í heiminum.
Ferguson lét ekki sitja við orðin
tóm. Hann tók þegar að hugsa um
og vinna að ýmsum nýjungum í sam-
bandi við vélrænan landbúnað, og
eitt fyrsta verkefnið, sem hann ein-
beitti sér að, var samband verkfær-
anna við dráttarvélina sjálfa. A þess-
um tímum voru dráttarvélar mjög
þungar og fyrirferðarmiklar og þurftu
að eyða mikilli orku í að þoka eigin
þunga áfram. Verkfærin voru óháð'
vélunum og aðeins hengd aftan í þær.
Reyndi Ferguson nú að búa til teng-
ingu milli dráttarvélar og verkfæris.
og tókst honum það fvrstum manin
Var það árið 1920, sem hann h.itAf
lokið þessari uppfinningu, og var ! a
hafin framleiðsla á þessum tækimn
en 1922 var stofnað Ferguson-Sh* i
man félagið í Evansville í Bandaríkj-
unum til að framleiða tækin einnig
vestan hafs.
Ferguson lagði á það mikla áherzlu
að fullkomna tæki sín, og 1935 hafði
honum tekizt að útbúa þá tengingu
í meginatriðum, sem nú er á dráttar-
vélum þeim, sem nafn hans bera. Er
tengingin þreföld og vökvalyfta í
sambandi við hana. Er hægt að
tengja mikinn fjölda verkfæra við
dráttarvélarnar án verulegrar fyrir-
hafnar. Er þetta hið svokallaða
„Ferguson-kerfi“, sem frægt er orðið,
og hafa margar aðrar dráttarvéla-
verksmiðjur tekið upp þessar nýjung-
ar. Hafa þær orðið til þess að ger-
breyta notkun dráttarvéla við land-
búnaðarstörf um heirn allan.
Auk þessa kerfis vann Ferguson
með sérfræðingum sínum að því að
framleiða léttari dráttarvél en áður
hafði þekkzt. Tókst honum það 1936
og hefur það reynzt bændum mikill
hægðarauki, bæði sökunt þess, að létt-
ari vélar eru ódýrari í innkaupum og
rekstri, hentugri til ýmissa starfa og
viðráðanlegri. Hér sem annars staðar
hafa margir fetað í fótspor Fergusons.
SAMNINGUR VIÐ FORD.
Enda þótt Ferguson væri Iri og
hefði fyrst í stað starfað aðallega í
Bretlandi, hóf hann einnig starfsemi
14