Samvinnan - 01.11.1951, Blaðsíða 16
JC
onurncir
°g
Sc
(unvinnan:
Haustfízkan í skóm
Fjölbreytt /ram/e/ðs/a og margar nýjungar
hjá skóverksmihjunni Iðunni
SÚ VAR TÍÐIN, að allir íslending-
ar gengu á ísl. sauðskinns- og kú-
skinnsskóm, og hvert heimili gerði skó
handa sínu heimafólki. Er tímar liðu
tóku að flytjast hingað erlendir skór,
og smám saman þokuðu íslenzku
skórnir fyrir hinum erlenda fótabún-
aði. í dag má það teljast til viðburð-
ar, ef gömlu íslenzku skórnir sjást á
fæti nokkurs manns. Ymsir hafa þó
haldið ástfóstri við hina gömlu skó-
gerð, og gert sér skó úr skæðum og
notað þá sem inniskó til þess að
bregða sér í heima og hvíla fótinn
frá háum hæl eða hörðum sóla. En
þeim fer fækkandi, sem kunna að
gera góða skó með gamla laginu.
Mjög hafa tímarnir breyzt, síðan
gömlu íslenzku skórnir voru á hvers
manns fæti. Hér í landi eru nú fram-
leiddir skór, sem forfeður okkar og
mæður myndi aldrei hafa órað fyrir,
að hægt yrði að framleiða í landinu
úr íslenzkum húðum og skinnum. Við
þurfum ekki lengur að líta upp til
„dönsku skónna“, sem þóttu því
betri sem meira marraði í þeim, en
getum í þess stað státað af okkar
eigin framleiðslu, hvar sem er.
Þrjár gerðir nf hinum nýju og mjög smekklegu götuskóm. Sólarnir eru mjúkir og skórnir þcegilegir
lðunnar-skór og Heklu-sokkar eru hinn ágcetastt
vetrarbúnaður, sem völ er á. %
IÐNAÐUR SAMVINNUMANNA
á Akureyri er löngu kunnur um land
allt og þó víðar væri leitað. Þar eru
ýmis nöfn, sem ber hátt, og má eink-
um nefna Gefjun og Iðunn, sem starf-
að hafa tugi ári úti við Glerána og
framleitt mikið af góðum varningi.
Hin síðari ár hafa orðið stórstígar
framfarir hjá báðum þessum iðntyr-
irtækjum, nýjar vélar hafa verið
settar upp, ný tækni og ýmis konar
nýjungar hafa sett svip á framleiðsl-
una. Vörurnar bera þess og glöggt
vitni, að ekki hefur verið um stöðnun
að ræða, heldur stöðuga þróun. Nú
er svo komið, að Iðunnar-skór eru
orðnir eftirsótt vara og Gefjunar-
dúkar eru ekki lengur aðeins til notk-
unar í grófari yfirhafnir, heldur eru
nú á markaðnum hinir prýðilegustu
dúkar í kjóla og allan léttari fatnað.
* * #
VIÐ SKULUM LÍTA sem snöggv-
ast inn í Skóverksmiðjuna Iðunni og
heilsa upp á framkvæmdastjórann,
Peter Chr. Lihn, sem er danskur
sérfræðingur í skóframleiðslu. Við
spyrjum, hvað helzt sé að frétta, og
okkur er bent á borð, sem á liggur
fjöldi sýnishorna. Okkur er sagt, að
verksmiðjan sé um þessar mundir að
senda frá sér um 30 nýjar gerðir af
skóm, svo að mikið er að sjá í skó-
verksmiðjunni í dag.
Hér hefur verið komið fyrir all-
16