Samvinnan - 01.11.1951, Síða 20
Undanfarna áratugi hefur mikill
fjöldi námsmanna frá öllum
heimsálfum sótt háskóla i Banda-
rikjunum, og má sjá menti af öll-
um kynþáttum við þœr stofnanir.
Meðal þeirra hefur verið allmargt
islenzkra námsmanna, sérstaklega
á styrjaldarárunum, en nú er tal-
ið, að islenzkir námsmenn vestra
séu um 60. Hafa nokkrir þeirra
fengið námsstyrki á ári hverju fyr-
ir milligöngu íslenzk-ameriska fé-
lagsins. sein hefur samvinnu við
menntastofnanir vestan hafs.
Einn frcegasti háskóli Bandarikj-
anna er Columbia skólinn i Netv
York, en þar er Eisenhower hers-
höfðingi nú rektor, þótt hann hafi
leyfi meðan hann gegnir embcetti
sinu fyrir Atlanzhafsbandalagið.
Columbia er 230 ára gömul stofn-
un, viðfrœg fyrir visinda- og frœði-
menn sína og kennslu á háu stigi.
I skólanum er alþjóðlegt stúd-
entaheimili, ,International House’,
og er myndin af anddyri þess.
Sambandsþingið...
(Frh. af bls. 7)
greiddu atkvæði 665, en á móti 353,
Rússar og fylgismenn þeirra.
Þá komu friðarmálin til umræðu
á þinginu, og var lögð fram ályktun-
artillaga frá miðstjórninni. Náðist
samkomulag um hinn almennari
hluta hennar, en um hinn, þar sem
sú stefna var mörkuð, að ICA hefði
engin afskipti af friðarhreyfingum
kommúnista, var að vonum deilt.
Bárust margar breytingartillögur,
en fulltrúar vestan járntjalds báru
hærri hlut með svipuðu atkvæða-
magni og áður.
Eitt mál stakk nokkuð í stúf við
þessi átök á þinginu, en það var til-
laga sænska samvinnusambandsins
um alþjóðlega nefnd til að vinna að
hagkvæmari verzlunarháttum (radi-
onaliseringu). Hefur hinn virti leið-
togi sænskra samvinnumanna, Al-
bin Johansson, haft frumkvæði um
hreyfingu í þessa átt og fengið góðar
undirtektir. Er það skoðun hans, að
mjög megi draga úr dreifingarkostn-
aði með fullkomnari starfsaðferðum
og meiri tækni, og þannig bæta hlut
neytenda um heim allan. Um þetta
mál urðu nokkrar umræður, og töl-
uðu fulltrúar margra landa — vestan
20