Samvinnan


Samvinnan - 01.11.1951, Qupperneq 20

Samvinnan - 01.11.1951, Qupperneq 20
Undanfarna áratugi hefur mikill fjöldi námsmanna frá öllum heimsálfum sótt háskóla i Banda- rikjunum, og má sjá menti af öll- um kynþáttum við þœr stofnanir. Meðal þeirra hefur verið allmargt islenzkra námsmanna, sérstaklega á styrjaldarárunum, en nú er tal- ið, að islenzkir námsmenn vestra séu um 60. Hafa nokkrir þeirra fengið námsstyrki á ári hverju fyr- ir milligöngu íslenzk-ameriska fé- lagsins. sein hefur samvinnu við menntastofnanir vestan hafs. Einn frcegasti háskóli Bandarikj- anna er Columbia skólinn i Netv York, en þar er Eisenhower hers- höfðingi nú rektor, þótt hann hafi leyfi meðan hann gegnir embcetti sinu fyrir Atlanzhafsbandalagið. Columbia er 230 ára gömul stofn- un, viðfrœg fyrir visinda- og frœði- menn sína og kennslu á háu stigi. I skólanum er alþjóðlegt stúd- entaheimili, ,International House’, og er myndin af anddyri þess. Sambandsþingið... (Frh. af bls. 7) greiddu atkvæði 665, en á móti 353, Rússar og fylgismenn þeirra. Þá komu friðarmálin til umræðu á þinginu, og var lögð fram ályktun- artillaga frá miðstjórninni. Náðist samkomulag um hinn almennari hluta hennar, en um hinn, þar sem sú stefna var mörkuð, að ICA hefði engin afskipti af friðarhreyfingum kommúnista, var að vonum deilt. Bárust margar breytingartillögur, en fulltrúar vestan járntjalds báru hærri hlut með svipuðu atkvæða- magni og áður. Eitt mál stakk nokkuð í stúf við þessi átök á þinginu, en það var til- laga sænska samvinnusambandsins um alþjóðlega nefnd til að vinna að hagkvæmari verzlunarháttum (radi- onaliseringu). Hefur hinn virti leið- togi sænskra samvinnumanna, Al- bin Johansson, haft frumkvæði um hreyfingu í þessa átt og fengið góðar undirtektir. Er það skoðun hans, að mjög megi draga úr dreifingarkostn- aði með fullkomnari starfsaðferðum og meiri tækni, og þannig bæta hlut neytenda um heim allan. Um þetta mál urðu nokkrar umræður, og töl- uðu fulltrúar margra landa — vestan 20

x

Samvinnan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.