Samvinnan - 01.12.1956, Blaðsíða 2
Útgefandi: Samband íslenzkra
samvinnufélaga.
Ritstjóri: Benedikt Gröndal.
Ritstjórn og afgreiðsla í
Sambandshúsinu, Reykjavík.
Ritstjórnarsími 7080.
Kemur út mánaðarlega.
Verð árgangsins kr. 50.00.
Verð í lausasölu 5 kr.
Prentsmiðjan Edda.
Efni:
Bls.
Lærdómur ungversku upp-
reisnarinnar 3
Nútíma kirkjubyggingar á
Islandi, eftir Gísla Sig-
urðsson 4
Holyrood Palace — smá-
saga, eftir Jón Björnsson 8
Vanræktar bókmenntir,
eftir Hermann Pálsson,
lektor 11
Þeir hljóta að koma á
morgun 13
íbúðarhús — teikning — 15
Skógurinn, auður Helsingja-
lands, eftir Sigvalda
Hjálmarsson 17
Síðasta förukonan, eftir
Magnús Finnbogason 19
Ránið í Blesukoti — fram-
haldssaga — 21
Vörugæði — þvottaefni — 25
Skipastóll samvinnu-
manna 26—27
Stutt saga um mikið átak 28
Kuml og haugfé úr heiðnum
sið á íslandi, eftir Kristj-
án Eldjárn, þjóðminja-
vörð 29
Þrír látnir samvinnumenn 38
Badminton, eftir Einar
Jónsson 43
Desember 1956
L. árgangur 12.
FORSÍÐUMYNDIN að' þessu sinni
er af líkani Guðjóns Samúelssonar af
hinni væntanlegu Hallgrímskirkju í
Reykjavík. Sú bygging mun gnæfa
yfir aðrar í höfuðstaðnum í himinleit-
andi tign og fegurð. Önnur mynd af
kirkjunni og umhverfi hennar er á
bls. 4 og hefur Þorvaldur Ágústsson
tekið þær báðar og einnig myndina
af Neskirkju. Guðmundur Ágústsson
hefur tekið myndirnar af tveim kirkj-
um í gömlum stíl á bls. 6 og Gestur
Einarsson, ljósmyndari, tók myndina
innan úr Selfosskirkju. Hverjir hafa
tekið aðrar kirkjumyndir, sem eru í
greininni um kirkjubyggingar, er
blaðinu ókunnugt um. Jóhannes Jör-
undsson hefur teiknað myndirnar í
smásöguna og Halldór Pétursson hef-
ur teiknað myndina, sem fylgir fram-
haldssögunni. Myndina með greininni
um afdrif trúboðanna í Ecuador hef-
ur Gísli Sigurðsson teiknað. Ásgeir
Júlíusson hefur teiknað myndirnar af
skipastól samvinnumanna á bls. 26 og
27.
NORÐRI gefur út allmargar jóla-
bækur að þessu sinni og er þar fremst
í flokki „Kuml og haugfé úr heiðnum
sið á íslandi“
ef tir Kristj án
Eldjárn, þjóð-
minjavörð. — í
þessu blaði er
gripið niður í
aftasta kafla
bókarinnar, sem
ber nafnið „Yf-
irlit og loka-
orð“. Kristján er
kunnari fræði-
maður en svo,
að hér þurfi að
kynna hann sem
slíkan. Hann er
fæddur að Tjörn í Svarfaðardal, 6/12
— 1916. Kristján stundaði nám við
Menntaskólann á Akureyri og tók
þaðan stúdentspróf 1936. Hann sneri
sér strax að fornleifafræðinni og nam
þau fræði við Hafnarháskóla á árun-
um 1936—39. Kristján var svo kenn-
ari við Menntaskólann á Akureyri um
tveggja vetra skeið, en sneri svo að
námi aftur við Háskóla íslands og
meistarapróf í norrænum fræðum tók
hann vorið 1944. Að því búnu varð
Kristján starfsmaður við Þjóðminja-
safnið og tók við embætti þjóðminja-
varðar af Matthíasi Þórðarsyni, seint
á árinu 1947. Þjóðminjasafnið var
flutt í nýja safnhúsið við Hringbraut,
árið 1950 og aðalstarf þjóðminjavarð-
ar síðan, hefur verið að skipuleggja
safnið þar.
GREININ í þessu hefti Samvinn-
unnar um hinar vanræktu bókmennt-
ir íslendinga.þjóðveldislögin fornu, er
eftir Hermann
Pálsson, lektor í
Edinborg. Hann
er hinn merk-
asti fræðimaður
og í fyrra gaf
Norðri út bók
eftir hann, sem
bar nafnið
„Söngvar frá
Suðureyjum“.
Hermann er
fæddur 24. maí,
1921 að Sauða-
nesi í Torfa-
lækjarhreppi í
Austur-Húnavatnssýslu. Hann stund-
aði nám við Menntaskólann á Akur-
eyri og varð stúdent þaðan vorið 1943.
Hermann nam síðan norrænu við há-
skólann hér og lauk magistersprófi
þaðan. Hermann lét ekki við svo búið
sitja og lagði stund á keltnesk fræði
við háskólann í Dublin á írlandi og
lauk prófi þaðan. Síðan hefur hann
verið sendikennari í norrænum mál-
um við háskólann í Edinborg.
í UMSÖGN um Friðjón Stefánsson,
höfund smásögunnar „Börn“, féll nið-
ur í síðasta hefti eftirfarandi:
Margar af smásögum hans hafa
verið þýddar á erlend tungumál —
meðal annarra hefur sænska sam-
vinnublaðið „Vi“ birt sögu eftir hann,
svo og norrænu bókmenntaritin „Ord
och Bild“ og „Vinduet“ og ameríska
tímaritið „American Scandinavian
Review“. Þá hafa og verið fluttar sög-
ur eftir hann í danska, sænska og
norska útvarpinu.
50 ÁR
eru liðin síðan Tímarit kaupfé-
laganna hóf útkomu sína.
í tilefni af því kemur út veglegt
afmælisblað af Samvinnunni.
Þetta afmælisblað verður vænt-
anlega þrefalt að stærð og mun
það koma fyrir sjónir lesenda í
febrúar eða marz.
Hermann Pálsson
2