Samvinnan - 01.12.1956, Blaðsíða 15
975
(búðarhús II
frá teiknistofu
landbúnaðarins
/ siðasta blaöi var teikning af ibúðarhúsi fyrir
þd, sem þurfa að byggja d vori komanda, og
hefur hún mælit vel fyrir. Ef menn eru ekki
ánœgðir með hana, þá er hér önnur, sem nokk-
uð er frábrugðin. Kjallari er undir tœþum
helming hússins, og er það að mörgu leyti
heþpilegt i sveitum, þar sem kjallarinn er not-
aður til matvcclageymslu. Þar er einnig hita-
miðstöð og þvottahús. — Flatarmál hæðarinnar
er um 100 fermetrar og er það mjög vel skipu-
lagt. Annarsvegar eru tvö stár svefnherbergi,
tvö minni og baðherbergi. Hins vegar er eld-
hús og stofa, hvorttveggja rúmgott og bjart.
Úr eldhúsinu er gengið niður i búrið. Til að
flatarmálið nýtist vel, þyltir gott, að bæði stofa
og eldhús séu með nokkuð ilöngu formi. Að
ofan er úllitsteikning. Framan á útskotið er
klætt með timbri til augnayndis og einnig er
þar hlaðið hellum d grunninn og smærri stein-
um á reykháfinn. Slik hleðsla getur farið mjög
vel, en aftur á móti færi mun betur að láta
þakið nd lengra út fyrir. í næsta blaði verður
væntanlega greiti eftir Þóri Baldvinsson um
húsabyggingar i sveitum.
gengu að því með oddi og egg að
uppfræða Indíánana.
Ed McCully hefði helzt haft ástæðu
til að hugsa sig um tvisvar. Hann og
kona hans, Marilou höfðu í meira en
ár verið í nágrenni við Auca-Indíán-
ana á trúboðsstcðinni í Arajuno. í
Arajuno hafði upphaflega verið olíu-
stöð, ^h þaðan flaut fremur blóð en
olía, svo hún var lögð niður. Þá
f'.attu trúboðarnir þangað, en vin-
skapur Aucana varð ekki meiri að
heldur. McCully tók það til bragðs, að
girða rafmagnsgirðingu kringum hús-
in. Þegar Ed McCully hafði kynnst
grimmd Auca-Indíánanna, fékk hann
enn meiri áhuga en fyrr, að koma
þeim í kynni við Kristinclóminn.
Nate Saint og Ed McCully flugu
þann 6. október inn yfir yfirráðasvæði
Auca-Indíánanna og fundu kofana við
vatnið. Þar var ekki lifandi mann að
sjá. Sem tákn um góðvilja þeirra, ætl-
uðu þeir nú að láta gjafir síga niður.
Þeir höfðu aluminiumketil, sem þeir
skreyttu með mislitum böndum og
létu hann síga niður hjá kofunum.
Þeir héldu heimleiðis, en er þeir
komu þar viku seina sáu þeir, að ket-
illinn var horfinn. Nú létu þeir síga
niður sax, en slíkir gripir voru svo
eftirsóttir meðal Auca-Indíánanna, að
morð var sjálfsagður hlutur til að ná
15