Samvinnan - 01.12.1956, Síða 17
Þar glitra daggir III.
EINHVERS STAÐAR inni á milli
trjánna hlaut að vera forsæla, þar
sem sveittur og móður ferðamaður
gat fengið svala hvíld. Enn framan
við Stadshotelið í Ljusdal var steikj-
andi hiti og sólargeislarnir stingandi
bjartir. Hitabylgjan hafði náð til
Helsingjalands. Það mátti heita logn,
og ein, þunn léreftsskyrta varð þung
og þvöl af svita. Nú var ferðinni heit-
ið út í skógana, til Fárila, sem stend-
ur við Ljusnan nokkru ofar en Ljus-
dal.
SVEITTUR EN SUNDURLEITUR
HÓPUR.
Leiðarvagninn, sem fer á milli Ljus-
dal og Sveg uppi í Herdal, beið á
torginu gegnt hótelinu. Eftir nokkrar
mínútur átti hann að leggja af stað.
Farþegarnir voru smátt og smátt að
tínast inn í hann, og þó að hópurinn
væri nokkuð sundurleitur, var þó eitt
sameiginlegt með öllum: allir voru
sveittir. Menn settust letilega í sætin
og komu fyrir öllu sínu hafurtaski.
Meðal farþeganna var veiðimaður.
vígbúinn til að herja í skógunum,
með veiðibyssu, veiðihníf og veiði-
tösku. Og meðal farþeganna voru
líka konur með sólbrennd og sak-
leysisleg börn, er gægðust forvitnis-
lega út um vagngluggann og virtu
fyrir sér húsin, trén, túnin og ána,
meðan vagninn þaut áfram eftir
greiðfærum veginum. Á báða bóga
voru skógar, en sums staðar höfðu
stórir flákar verið ruddir og bolunum
staflað í borgir, eða þeir höfðu þegar
verið fluttir í ána, sem ber þá til
vinnslustaðar. Talsvert timbur var
enn í ánni, þótt komið væri alllangt
fram á sumarið. Vorið var kalt, þótt
nú sé kominn ofsahiti, og það tafði
fleytinguna og önnur vorverk f skóg-
inum. En brátt yrði hún hreinsuð.
Það var strjálingur af heiðgulum
trjábolum hingað og þangað með-
fram bökkunum. Sjálf streymdi áin
Hver skógareigandi hefur sitt mark á trjábol-
unum og þegar timbrinu hefur verið fleytt
niður árnar, hefjast skilaréttir og bolirnir eru
dregnir sundur eftir mörkum. Siðan eru þeir
fluttir til sögunarmylnanna og staflað eins og
myndin sýnir.
Skógurinn, auður Helsingjalands
Ferðaþættir frá Svíþjóð, eftir Sigvalda Hjálmarsson
Viðarkolagerð var áður umsvifamikil atvinnu-
grein meðal skógarhöggsmanna, en nu er hún
að mestu úr sögunni.
í hátignarlegri ró. Hvergi er hún
virðulegri en við kirkjuþorpið í
Fárila. Þar fellur hún þungt en án
boðafalla í djúpum farvegi milli
skógi vaxinna bakka. Hér skildust
leiðir. Leiðarvagninn hélt áfram, og
brátt var hann horfinn. Eftir nokkrar
klukkustundir mundi hann verða
kominn upp í gegnum skógana til
Sveg.
ENDALAUSIR SKÓGAR.
Framkvæmdastjóri skógarfyrirtæk-
is, sem að nokkru hefur aðsetur í
Fárila og nytjar þar víðlenda skógar-
fláka, gerði mér þann greiða að sýna
mér skógarlendur félags síns. Hann
ók sjálfur bifreiðinni og ók greitt.
Leiðin lá marga kílómetra vestur á
bóginn og upp með ánni — út í eyði-
skógana. Hér voru sannarlega enda-
lausir skógar og víða forsæla inni á
milli triánna. Þar sem svo hagaði til,
að unnt var að skyggnast yfir landið,
blasti hrjúfur feldur skógarins við
langt sem augað eygði, en hann duldi
þó allvíða vötn og mýrarfláka, sem
aðeins gerðu hann ævintýralegri og>
17