Samvinnan - 01.12.1956, Side 25
Vörugæði II
ÞVOTTAEFNI
Eftir Eiríku Friðriksdóttur
í greininni um spunaefni í janúar-
hefti Samvinnunnar 1956 var skýrt frá
því, að ending efnanna væri undir
gagnkvæmum áhrifum fimm aðalat-
riða komin. Þau eru tegund spunaefn-
isins, gerð vefnaðarins, fágun, notk-
un og meðferð. Nú skulum við ræða
um meðferð á efnum.
Á okkar tímum er það sjálfsögð
krafa, að fatnaður sé vel hreinn. Við
liöfum yfirleitt tvo möguleika til að
hreinsa fatnað. Annað er þvottur, hitt
er kemisk hreinsun. Þar sem hægt er
að þvo fatnaðinn heima er það ódýr-
ast og því mikilvægast. Til þvottar
notum við alltaf vatn (en benzín, trí-
klóretýlen eða tetraklórkolefni til
kemískrar hreinsunar) og einnig
hjálparefni, sem við köllum „þvotta-
efni“. Þvottaefnin gegna fimm hlut-
verkum:
(1) Að bleyta fatnaðinn.
(2) Að leysa upp öll ólífræn og líf-
ræn óhreinindi, sem leysast
upp í vatni.
(3) Að gera sýru i óhreinindunum
óvirka.
(4) Að dreifa óuppleysanlegum efn-
um til þess að losa óhreinindin
frá þráðunum.
(5) Að koma í veg fyrir, að efnið,
sem var leyst upp, setjist aftur
fast í þræðina.
Vatnið út af fyrir sig nægir ekki til
að bleyta efnið. Eins og við öll vitum,
rennur regnvatn af tjalddúkum, séu
þeir vel spenntir. Af öllum þvottaefn-
um, sem enn eru í notkun, er sápan
hið elzta, en nægir samt ekki til þess
að þvo vel, sé vatnið hart, þ. e. þegar
mikið kalk er í vatninu. Á öllum
svæðum þar sem vatnið er hart, er
nauðsynlegt að leggja efnið — hér er
um að ræða bómullar- og hörefni, en
ekki um manngerða þræði — í bleyti.
Til þess notum við smávegis sóda. Á
íslandi er vatnið yfirleitt ekki mjög
hart, það er aðeins tveggja gráðu
vatnsharka í Gvendarbrunnarvatninu
í Reykjavík, en það þýðir samt sem
áður, að kalkið í 60 1 af vatni eyði-
leggur fyrir okkur um það bil 12—15
g af sápuspónum. Harka hitaveitu-
vatnsins í Reykjavík er aðeins 0.65, en
hæsta harkan er á Hellu í Rangárvalla-
sýslu, 4,9. — Bezt er að leggja efnið í
bleyti næturlangt.
Næst á eftir má sjóða fatnaðinn. í
mörgum húsum er rafmagnspottur til
þess. Sjóðandi vatn er aðeins hættu-
laust fyrir hreint bómullarefni, en
hörefni (hreint léreft) þolir illa hita,
sem er hærri en 80°'' C. Rannsóknir
hafa leitt í ljós, að léreft tapar 43%
styrkleika ef það er soðið 50 sinnum,
en aðeins 25% styrkleikans sé 80° C.
heitt vatn notað. Silki og ull má ekki
þvo í heitara vatni en 40° C.
Að bleyta efnið þýðir að lækka yfir-
borðsspennuna, þ. e. aflið, sem held-
ur sundur vatninu og loftinu. Yfir-
borðsspennan er minnst, þegar 1—2
grömm af fitusýru eru- notuð fyrir
hvern lítra af vatni, þegar við notum
sápu. Ef við notum meiri sápu, hækk-
ar yfirborðsspennan aftur, og þess
vegna verður að nota magnið, sem
framleiðendur leggja til að verði not-
að. Hvernig yfirborðsspennan minnk-
ar við notkun sápu, sést bezt á dæm-
inu um Geysi í Haukadal. Líklegt er,
að það sé einnig froða sápuefnisins,
sem hjálpar til að lækka yfirborðs-
spennuna, og froðan sýnir að virkt
þvottaefni er ennþá í vatninu. Hins-
vegar eru til þvottaefni, sem frevða
alls ekki.
Til er annað afl, sem verkar á milli
vatns og olíu eða vatns og fastra hluta.
Einnig er nauðsynlegt að lækka þetta
afl til þess að losa óhreinindin úr fatn-
aðinum. Nauðsynlegt er að fá þeytu
(emulsion) af vatni og olíu og koma
í veg fyrir, að óhreinindin setjist aftur
í efnið. Þvottaefnið hefur hér gefið
smáögnum í vatninu gagnstæða raf-
magnshleðslu.
Eftirfarandi sápur eða sápuefni eru
til:
(1) Blautsápa. Hún er gerð beint úr
sápukjarna, sem kemur fram, þegar
feiti er blönduð með kali- eða natron-
lút. Blautsápa hefur 40% fitusýru og
er ágæt til þess að þvo mjög óhrein
vinnuföt.
(2) Stangasápa og sápuspænir. —
Stangasápa cr þurr og hefur 65—80%
fitusýru. Sápuspænir er fínt möluð
þurr sápa með 80—85% fitusýru.
(3) Sjálfvirkt sápuduft, eins og
Perla. Þau eru ágæt til allra þvotta
nema hinna fínustu. Fyrir utan sápu
(40% fitusýru) innihalda þau einnig
vatnslausan sóda (20%) vatnsglas
(3%), natríumperbórat, sem bleiki-
efni (8%) og upp á síðkastið einnig
ljósvirk bleikiefni og CMC. CMC,
sem núna finnst t. d. í Perlu hér á
• •* *• j
landi, er trefjaefni. Þegar CMC leys-
ist upp, þrútnar það og þrýstist inn í
holrými milli þráða, með því eykur
CMC styrkleika fatatfnisins. CMC
(Framh. á bls. 39)
25