Samvinnan - 01.12.1956, Qupperneq 28
Stutt saga um mikið átak
Myndirnar í opnunni á undan, er
sýna sjö myndarleg kaupskip sam-
vinnumanna, eru einn sterkasti vitn-
isburður, sem til er um framtak sam-
vinnuhreyfingarinnar á síðasta ára-
tug. Einn mikilsverðasti þátturinn í
efnahagskerfi þjóðarinnar, kaupskipa-
flotinn, er stórum mun öflugri, um
tvö hundruð sjómenn og fjölskyldur
þeirra hafa gott lífsviðurværi, þjóðin
er stórum mun sjálfstæðari um sigl-
ingar sínar og tugir hafna um land
allt njóta betri siglingaþjónustu en
nokkru sinni fyrr. Þetta eru nokkur
atriði, sem telja má heillavænlegan
árangur af sókn samvinnumanna á
þessu sviði.
Olíuskipið Hamrafell hefur í þess-
um myndarlega flota algera sérstöðu.
Getur vart hugsazt betri vitnisburður
um framsýni og dugnað forustu-
manna SÍS og Olíufélagsins en kaup
þessa skips. Nokkrum mánuðum eftir
að það komst í íslenzka eigu, skapað-
ist það ástand, að erfitt varð að fá
olíuskip vegna heimsviðburða og
flutningsgjöld stórhækkuðu verð skip-
anna. Fyrirhyggjan við kaup þessa
skips hefur þegar sparað þjóðinni
milljónir króna og erfiðleikarnir á
leigu erlendra skipa, jafnvel fyrir
margfalt gjald, eru svo miklir, að ís-
lendingar geta prísað sig sæla yfir að
eiga eitt slíkt skip. Betur að yfirvöld
landsins hefðu skilið mál þetta, þegar
Sambandsmenn fyrst vildu kaupa og
gátu keypt slíkt skip. Þá væri ef til
vill annað komið nú og þjóðin sjálfri
sér nóg um olíuflutninga á mestu um-
rótstímum slíkra siglinga, sem komið
hafa.
Þessir þankar — og myndirnar í
opnunni á undan — eru birt í tilefni
af 10 ára afmæli skipadeildar SÍS, sem
nú lýtur forstöðu Hjartar Hjartar
framkvæmdastjóra.
Saga skipakaupanna er í stórum
dráttum sú, að strax í styrjaldarlok
var undir forustu Vilhjálms Þór haf-
izt handa um kaup á skipi og reynd-
ist það fáanlegt suður á Ítalíu. Haust-
ið 1946 kom Hvassafell til heima-
hafnar sinnar á Akureyri, fyrsta skip-
ið, sem sigldi undir fána SÍS og var
málað hinum gráa, græna og gula lit
Sambandsskipanna. Skipið hefur
reynzt með afbrigðum vel frá byrjun
og hentugt til hvers konar þunga-
flutninga, sem verið hafa aðal verk-
efni þess.
Skömmu síðar var hugsað til ann-
ars skips og samið um smíði Jress í
Svíþjóð. Var það Arnarfell, álíka stórt
og fyrsta skipið (2300 Dwt). Kom það
til heimahafnar í Húsavík árið 1949.
Ekki var þó staðar numið, heldur
samið strax og leyfi fékkst, um smíði
á þriðja skipinu, Jökulfelli, sem
einnig var smíðað í Svíþjóð. Það er
nokkru minna en hin (1060 Dwt) og
kæliskip að útbúnaði. Stærð þess var
miðuð við að það gæti tekið fisk á
þeim smáhöfnum, þar sem kaupfélög-
in eiga frystihús, og hefur Jrað reynzt
ómetanlegt í þeim sökum.
Fjórða skipið var enn smíðað með
það fyrir augum að geta Jrjónað smá-
höfnum landsins og veitt þeim sigl-
ingaþjónustu, sem þær höfðu ekki áð-
ur þekkt. Disarfell er álíka stórt og
Jökulfell, smíðað í Hollandi, og hef-
ur aðallega flutt stykkjavöru og
þungavöru milli íslands og megin-
landsins.
Þá kemur að stóru stökki, er tvö
skip bættust við flotann á einu ári,
1954, en þá kom Litlafell að vori, lít-
ið olíuskip, sem er sameign SÍS og
Olíufélagsins og til þess ætlað að flytja
benzín og olíur frá innflutningshöfn-
um til hinna ýmsu staða um land allt-.
Um haustið kom svo Helgafell til
landsins, nýsmíðað í Svíþjóð, systur-
skip Arnarfells, nema hvað það er
byggt fyrir meira burðarmagn (3280
Dwt) og smábreytingar gerðar.
Loks er eftir sjöunda skipið. hið
mikla olíuskip, sem kom til landsins
í þessum mánuði, og er eitt mesta
þrekvirki íslendinga í atvinnumálum.
Það mun vafalaust eiga eftir að koma
mjög við sögu og verða nánar rætt í
síðum samvinnublaða í framtíðinni.
Þetta er stutt saga, en segir þó frá
mikilli og örri þróun, — Grettistaki
sem samvinnumenn hafa lyft, þjóð-
inni til aukinna hagsbóta og far-
sældar.
Þegar rithöfundurinn Mark Twain
var upp á sitt bezta, sat hann eitt
sinn við bar með nokkrum vina sinna.
Þeir ætluðu að njóta drykkjunnar í
nokkrar stundir á hinn gamla og góða
máta — en með hverju whiskýglasi,
sem veitingamaðurinn bar honum,
fylgdi vatnsglas, sem skáldið leit ekki
við.
— Ætlarðu ekki að drekka eitthvað
af vatninu? spurði einn af vinum
hans.
Mark Twain leit á hann með lítils-
virðingu og sagði:
— Vitanlega ekki. Hvaða maður
með viti heldurðu að kveiki upp og
slökkvi eldinn um leið?
★
Afþurrkunarklútinn er gott að
væta í steinolíu, láta hann þorna og
nota síðan.
•
Ef þið þurfið að flytja þung hús-
gögn til í herbergi, þá er gott að
smeygja prjónaklút undir fætur
skápsins, eða hvað það er, sem flytja
á, og draga það síðan. Gólfdúkurinn
rispast ekki og það er ótrúlega auð-
velt að draga á þennan hátt þyngstu
muni.
Fljótur að loka hurðinni maður! — Ég hlýt að
haja uppgötvað eitthvað.
28