Samvinnan - 01.12.1956, Side 38
Pálmi Hannesson Anders Örne Jón Sigurjónsson
PÁLMIHANNESSON, rektor Mennta-
skólans í Reykjavík, var til moldar
borinn í mánuðinum sem leið. Pálmi
var gáfaður og
vel menntaður
fræðimaður og
var mikill mann-
skaði, að hann
skyldi falla frá
innan við sext-
ugt. Hann tók
virkan þátt í
stjórnmálum og
sat á þingi fyrir
Skagfirðinga um
fimm ára skeið.
Hann var baráttumaður fyrir fram-
gangi samvinnustefnunnar og for-
maður Kaupfélags Reykjavíkur var
hann frá 1934—37.
Pálmi var fæddur að Skíðastöðum í
Lýtingsstaðahreppi, 3. janúar, 1898.
Hann stundaði nám í Gagnfræðaskól-
anum á Akureyri og við Menntaskól-
ann í Reykjavík og tók stúdentspróf
þaðan 1918. Pálmi lagði stund á
náttúrufræði við háskólann í Kaup-
mannahöfn og lauk meistaraprófi í
þeim fræðum vorið 1926. Hann varð
síðan kennari við Gagnfræðaskólann
á Akureyri um þriggja vetra skeið og
rektor Menntaskólans í Reykjavík frá
1929. Pálmi var, án efa, einn gagn-
merkasti skólamaður íslendinga, fyrr
og síðar.
EINN FREMSTI samvinnufrömuð-
ur Svía, Anders Örne, beið bana í
bifreiðaslysi fyrir skömmu síðan. —
Hann var rúm-
lega 75 ára gam-
all. Anders Örne
aðhylltist
snemma sam-
vinnuhugsjón-
ina og gekk í
þjónustu Koop-
erativa Förbund-
et (Samband
sænsku kaupfé-
laganna). Hann
var um tíma í
st j órn K.F. og ritst j. blaðanna Kooper a-
tören og Konsumentbladet. Örne kom
víða við. Hann tók virkan þátt í al-
þjóða-samvinnumálum og lét mikið
til sín taka á þingum K.F. Hann átti
um tíma sæti á sænska þinginu og
var ráðherra í annari ríkisstjórn
Brantings. Hann starfaði einnig fyrir
efnahagssamvinnu Norðurlandanna.
Árið 1926 var Örne skipaður yfir-
póstmeistari Svíþjóðar.
Kunnastur er þó Anders Örne fyrir
skrif sín um samvinnumál. Hann er
fremsti samvinnurithöfundur Svía og
bækur hans og kenningar hafa haft
mikil áhrif utan Svíþjóðar sem innan.
ÞANN 19. nóvember s.l., andaðist
Jón Kr. Sigurjónsson, prentari í Eddu-
prentsmiðju, rúmlega 71 árs að aldri.
Hann var einn
af hinum hóg-
væru eljumönn-
um, sem vinna
störfin af trú-
mennsku, sáttir
við guð og menn.
Þegar Tímarit
kaupfélaganna
hóf göngu sína
fyrir réttum
fimmtíu árum,
hafði Jón þegar
staðið í sex ár við iðn sína og nálega
hálfri öld bætti hann við starfsdag-
daginn eftir það.
Samvinnan getur með þakklæti
minnst starfa Jóns í þágu ritsins,
fyrst í Acta-prentsmiðju og seinna í
Eddu. Hann annaðist lengi niðurröð-
un á efni og myndum í blaðið og lagði
sig fram um að hafa það sem smekk-
legast.
Jón fæddist 10. apríl, 1885 að Njarð-
vík í Borgarfirði eystra. Hann hóf
prentnám í prentsmiðju Austra á
Seyðisfirði, 1901 og var þar til 1910.
Þá flutti hann til Reykj avíkur og vann
um 10 ára skeið hjá ísafoldarprent-
smiðju. Jón var einn af stofnendum
prentsmiðjunnar Acta og vann þar
þangað til prentsmiðjan var seld, en
eftir það hjá Edduprentsmiðju til síð-
ustu áramóta.
Esso
Smurstöð vor í Hafnarstræti
23 er elzta fyrirtæki sinnar
tegundar á landinu og selur
a ð e i n s hinar heimskunnu
ESSO-smurolíur.
Þaulvanir menn veita yður
beztu þjónustu, sem völ er á.
Hið íslenzka steinolíuhlutafélag
Símar 81600 og 1968
Tryggiö framtíö barnanna
LÍ FTRYGGIÐ
(jlALy jói!
38