Samvinnan - 01.12.1956, Blaðsíða 41
að þvo í rétt aðeins volgu vatni. Hins-
vegar þar sem vatnið á íslandi er yfir-
leitt mjög mjúkt, er jafngott að nota
Perlu og þvílík efni, sem innihalda
sápu, og ónauðsynlegt er að kaupa er-
lent syntetískt þvottaefni fyrir venju-
legan þvott.
Það er ekki nóg, að vatn með þvotta-
efni leysi óhreinindin úr þvottinum,
heldur verður einnig að fjarlægja þau
með hreyfingu á vatninu. Þess vegna
er þvotturinn nuddaður á þvotta-
bretti, eða honum snúið í þvottavél-
inni. Aldrei má skrúbba með bursta,
því að menn hafa komizt að raun um,
að þá eyðast efnin meira í þvotti, en
í notkun. Þess vegna er nauðsynlegt
að þvo, áður en fötin verða svo óhrein,
að grípa þarf til eyðandi þvotta-
aðferða.
Næsta grein mun fjalla um sérstak-
ar aðferðir við þvott og hreinsun, eins
og bleikjun á nælon og annað.
Vanræktar
bókmenntir
(Framh. a£ bls. 12)
Ef inaður særir alib jörn manns hvit-
an, saklausan, þd varðar honum út-
legð og gjalda auvisla. Ef fimm aura
skaði verður að eða meiri, þd varðar
fjörbaugsgarð. Björn verður óheilagur
við áverkum, ef liann gerir skaða
mönnum.
Ef maður höggur hund eða björn
til hdðungar manni, þá er sd heldur d,
er varðveitir, og varðar það fjörbaugs-
garð. Það varðar og mönnum fjör-
baugsgarð ef ferja viðbjörn út hingað.
Þeim varðar, er d, og stýrimönnum,
en hásetum þriggja marka útlegð, og
skal kveðja búa d þingi niu til fjör-
baugs saka allra, en fimm til útlegðar.
Ef viðbjörn verður laus út hér og gerir
hann skaða mönnum eða fé manns,
og ábyrgist sd björn að öllu, er út
hafði, svo sem annan alibjörn. Slikt
varðar, ef hingað er farður vargur eða
refur.
VIII.
í lögunum eru ströng ákvæði um
trú manna, og viðurlög þung ef útaf
var brugðið, sem marka má af eftir-
farandi kafla:
Menn skulu trúa d Guð einn og a
helga menn til drnaðarorðs sér og blóta
eigi heiðnar vœttir. Þd blótar maður
heiðnar vættir, er hann signar fé sitt
öðrum en Guði og helgum mönnum
hans. Ef maður blótar heiðnar vœttir
og varðar það fjörbaugsgarð.
Ef maður fer með galdra eða fjöl-
kynngi, og varðar honum það fjör-
baugsgarð, og skal stefna heiman og
sækja við tólftarkvið. Þd fer hann með
galdra, ef hann kveður það eða kennir
eða lætur kveða að sér eða fé sinu.
Ef maður fer með fordæðuskap, þd
varðar það skóggang. Það eru fordœðu-
skapir ef maður gerir i orðum sinum
eða fjölkynngi sótt eða bana mönnum
eða fé. Það skal sækja við tólftarkvið.
Menn skulu eigi fara með steina eða
magna þd til þess að binda d menn
eða fénað. Ef maður trúir á steina til
heilindis sér eða fé sinu, og varðar
fjörbaugsgarð.
IX.
Að lokum birtast hér hin svoköll-
uðu tryggðamál, sem eru að miklu
leyti í bundnu máli, og þarf ekki að
skýra nánar.
Sakir voru á milli þeirra N. N. og
N. N., en nú eru þær settar og fé
bættar,
sem metendur mátu
og teljendur töldu
og dómur dæmdi
og þiggjendur þdgu
og þaðan bdru
með fullu fé
og fram komnum eyri,
þeim i hönd selt,
er hafa skyldi.
Þið skuluð vera menn
sattir og samværir
að öldri og að dti,
á þingi og d þjóðstefnu,
að kirkna sókn
og i konungs húsi,
og hvervetna þess, er manna fundir
verða, þd skuluð þið svo samsdttir sem
aldrei hæfist þetta ykkar á meðal. Þið
skuluð deila
kníf og kjötstykki
og alla hluti
ykkar i milli
sem frændur en eigi fjdndur.
Ef sakar gerast siðan d milli þehra
annað en það, er vel er, það
skal fé bæta,
en eigi flein rjóða.
En sd ykkar
er gengur d gervar sdttir
eða vegur d veittar tryggðir,
þd skal hann
svo viða vargur,
rækur og reliinn,
sem menn víðast
varga reka,
kristnir menn
kirkjur sækja,
heiðnir menn
hof blóta,
eldur upp brennur,
jörð grær,
mögur móður kallar
og móðir mög fæðir,
aldir elda kynda,
skip skriður,
skildir blikja,
sól skin,
snæ leggur,
Finnur skriður,
fura vex,
valur flýgur
vorlangan dag,
stendur honum byr beinn
undir bdða vængi,
himinn hverfur,
heimur er byggður,
vindur þýtur,
vötn til sævar falla,
karlar korni sd.
Hann skal firrast
kirkjur og kristna menn,
guðs hús og guma,
heim hvern
nema helviti.
Nú haldið þið báðir d bók einni,
enda liggur nú fé d bók, er N. N.
bætir fyrir sig og sinn erfingja, alinn
og óborinn, getinn og ógetinn, nefnd-
an og ónefndan. N. N. tekur tryggðir,
41