Samvinnan - 01.12.1956, Page 43
Badminton
er mjög skemmtileg íþrótt, sem
gefur alhliða þjálfun líkamans
og þroskar flýti hugans.
★
oniion
★
Báðar þessar inyndir eru úr tviliðaleik karla.
Eins og myndirnar sýna, leika tveir menn sam*
an á hvorum vallarhelmingi. Á þessari tnynd
sjást Islandsmeistararnir i tviliðaleik karla, Ein-
ar Jónsson til vinstri og Wagner Walhom til
hœgri.
Á myndinni til hœgri er Einar að slá knöttinn.
en Friðrik Sigurhjörnsson er til vinstri.
Hvað er Badminton? Þannig
spurðu margir og enn eru margir, sem
ekki þekkja hvað það er. Badminton
er fjaðraknattleikur, leikinn innan-
húss og útheimtir ekki meira húsrúm
en nýrri leikfimissalir í landinu hafa.
A gólfið er afmarkaður völlur, er
skiptist í tvennt af neti, sem strengt
er eftir miðjum þverum vellinum í
1.55 m hæð. Leikmenn hafa spaða,
sem líkist tennisspaða en er miklu
léttari og grennri. Knötturinn er
þakinn fjöðrum á röndum annars
endans og líkist þá bikar í lögun.
Það er tilgangur og takmark þessa
leiks, að slá boltann yfir netið og
koma honum í gólfið hjá keppinaut
sínum.
Saga Badmintonsins og uppruni.
Talið er, að þessi leikur sé fyrst
leikinn og fundinn upp í Indlandi fyr-
ir nokkrum öldum og hlaut leikurinn
nafnið Badminton vegna þess að
höllin, sem hann var fyrst leikinn í
hét Badmintonhause og er þetta nafn
notað um allan heim.
Hingað barst þessi leikur frá Dan-
mörku, var það hinn þekkti íþrótta-
maður Jón S. Jóhannesson (er eitt
sinn var starfsmaður hjá SÍS), sem
kynntist þessari fögru og drengilegu
en N. N. veitir œvintryggðir, þær er œ
skulu haldast,
meðan mold er
og menn lifa.
Nú eru þeir N. N. og N. N.
sáttir og sammála,
hvar sem þeir hittast,
á landi eða legi,
skipi eða á skíði,
i hafi eða á hests haki.
árar að miðla
eða austskotu,
þóptu eða þilju,
ef þarfar gervast,
jafnsáttir hvor við annan
sem faðir við son
eða sonur við föður
i samförum öllum.
Nú leggja þeir hendur sinar saman
N. N. og N. N. Haldið vel tryggðir
að vilja Krists og allra manna, þeirra
er nú heyrðu tryggðamál.
Hafi sá hylli Guðs,
er heldur tryggðir,
en sá reiði, er rýfur
réttar tryggðir,
en hylli sá, er heldur.
hafið heilir sætzt.
En vér séum vottar,
er við erum staddir.
43