Samvinnan - 01.12.1956, Qupperneq 52
V »2»
I
FRAMTAK — FRAMFARIR |
IFyrsta hlutverk samvinnufélaganna á íslandi var að koma verzlun landsins
á íslenzkar hendur og skera niður okurverðlag selstöðukaupmanna. Síðan
hafa verkefni hreyfingarinnar rekið hvert annað, enda vilja samvinnu-
menn láta til sín taka við hvaða viðfangsefni þjóðarinnar, sem þeir telja,
að samvinnufélögin geti hjálpað til að leysa betur en aðrir, landsfólkinu
til heilla. Þetta hefur leitt til þess, að fólk um hina dreyfðu byggð landsins
leitar í vaxandi mæli til samvinnufélaganna um lausn á hvers konar
vandamálum í atvinnu-, viðskipta- og menningarmálum. Þáttur samvinnu-
félaganna í uppbyggingu atvinnulífsins, sem er undirstaða velmegunar
þjóðarinnar, hefur orðið æ mikilvægari með hverju ári. Þau hafa sýnt þor
og dug og lyft Grettistökum í framleiðslu, samgöngum og verzlun. Síðasta
dæmi um þetta er hið mikla olíuskip, Hamrafell, sem myndin að ofan
sýnir. Ef þjóðin heldur áfram að fylkja sér um samvinnuhreyfinguna,
mun hún styrkjast til meiri og stærri átaka, er munu skapa framleiðslu,
atvinnu og velmegun.
SAMBAND ÍSL. SAMVINNUFÉLAGA
52