Samvinnan


Samvinnan - 01.07.1957, Blaðsíða 2

Samvinnan - 01.07.1957, Blaðsíða 2
Útgefandi: Samband ísl. samvinnufélaga. Ritstjóri: Benedikt Gröndal. Ritstjórn og afgreiðsla í Sambandshúsinu, Reykjavík. Ritstjórnarsími: 17080. Kemur út mánaðarlega. Verð árgangsins kr. 90.00 Verð í lausasölu kr. 9.00 Prentsmiðjan Edda. Efni: Er almenningur kærulaus um verðlag nauðsynja? ......... 3 Sólríkir samvinnufundir ... 4 Samvinnumenn gefa 100 þús. til handritabyggingar .... 6 Skál í botn — smásaga eftir Stefán Jónsson ............. 7 Atvinnustöðvar í sveitum . . 9 Stofublóm. Kafli úr bók Ing- ólfs Davíðssonar........... 11 Að eiga menn að missa meiri og betri en aðrar þjóðir. — Kveðjuorð til Guðmundar á Hvítárbakka ............... 13 Samvinnutiyggingar endur- greiða 2.675.000 kr...... 15 Sjálfeldishlaða og lausa- gönugfjós.................. 15 Þingeyskur Miinchhausen. Eftir Jón Sigurðsson, Yzta- felli................... 16 Ránið í Blesukoti, sögulok . . 19 Byrði kastað,kvæði eftir Þor- stein Jónsson.............. 23 Fulltrúar á aðalfundi SÍS ’57 23 Prentvillupúkinn kastar byrðinni. Leiðinleg prentvilla slæddist í þetta blað og eru lesendur vinsamlegast beðnir að athuga það. Á bls. 23 er kvæði, sem heitir Byrði kastað, en ekki Birði, enda mun ekkert orð í ís- lenzku þannig stafsett. — Prentvillu- púkanum tókst þó að halda huliðs- hjálmi yfir skammarstrikinu þar til búið var að prenta síðuna. FYRIR ÞÁ, sem áhyggjur hafa af þcirri staðreynd, að íslendingar geta sáralítið framleitt eða litla þjónustu veitt á samkeppnisfæru verði við aðrar þjóðir, er veruleg huggun að hugsa um millilandaflug íslenzkra flugfélaga. Á því sviði snýst myndin við. Fjöldi voldugra, erlendra flugfé- laga nýtur meiri eða minni opinberra styrkja, en hér á landi eru tvö flug- félög, sem flytja farþega milli heims- álfa án ríkisstyrks fyrir sömu eða lægri fargjöld en hin erlendu risafé- lög. Það er því ekki að ástæðulausu, að íslendingar eru stoltir af flugfé- lögum sínum og fljúga að líkindum flestum þjóðum meira innan lands og utan. EF VELJA ÆTTI TÁKNMYND fyrir flugið, mætti vel taka mynd sem þá, er Samvinnan birtir nú á forsíðu sinni: myndarleg æska er það fólk, sem starfar fyrir flugið og hefur með fullkomnu valdi á flóknustu nútíma- tækni gert íslenzka flugið frægt. Flug- freyjan er Stefanía Guðmundsdóttir (gömul starfsstúlka hjá SÍS) og starf- ar fyrir Loftleiðir, sem nýverið minnt- ust tíu ára flugafmælis sins. Á fyrsta áratuginum flugu Loftleiðamenn ekki aðeins með um 80 000 farþega leið, sem er samanlagt jafnlöng 15 ferð- um til tunglsins og aftur heim, held- ur varð félag þeirra vlðfrægt um flug- svæði sitt fyrir ódýra þjónustu. FLUGTÆKNINNI fleygir fram og með hverju ári eru teknar í notkun fullkomnari, en um leið stórum dýr- ari flugvélar. Þetta hefur gert flug- félögum víða um heim erfitt fjárhags- lega, og óttuðust margir, að það mundi reynast ofviða íslenzku félög- unum að eignazt þrýstiloftsvélar, sem samkeppnisfærar væru. Svo hefur þó ekki farið, sem betur fer. Flugfélag íslands hefur þegar fengið tvær nýjar vélar og Loftleiðir, sem þurfa lang- fleygari vélar í Ameríkuflug sitt, hafa fest kaup á tveim Lockheed Electra flugvélum. Með þessum nýju flug- vélum eru farþegum íslenzkra milli- landaflugvéla ekki aðeins tryggð stór- aukin þægindi, heldur er fengin auk- in trygging fyrir framtíð íslenzks millilandaflugs, sem er einn ánægju- legastur þáttur í nýbyggingu íslenzkra atvinnuvega. í ÞESSU HEFTI Samvinnunnar lýkur framhaldssögunni, sem verið hefur í blaðinu síðastliðið ár. Sagan varð vinsæl, einkum meðal kvenþjóð- arinnar, sem oft kann betur að meta rómantík af því tagi, sem um er fjall- að í sögunni. Halldór Pétursson teiknaði mynd- ina með framhaldssögunni, Jóhannes Jörundsson teiknaði myndina með smásögunni og Gísli Sigurðsson tók myndirnar af aðalfundi SÍS, frá Hofsósi og af Guðmundi á Hvítár- bakka. Myndina af kaupfélagsstjóra- fundinum tók Kristleifur Jónsson, 2 SAMVINNAN

x

Samvinnan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.