Samvinnan


Samvinnan - 01.07.1957, Blaðsíða 3

Samvinnan - 01.07.1957, Blaðsíða 3
SAMVINNAN Er almenningur kærulaus um verðlag nauðsynja? Dýrtíð hefur nú um langt árabil fylgt íslendingum eins og skuggi og er afleiðing peningaflóðs, velmegunar og gífurlegrar fjárfestingar. Ár frá ári hækkar verðlag allt á lífsnauðsynjum jafnt sem óþarfa og hafa öll ráð til stöðvunar reynzt harla skammvinn. Þegar svo er ástatt mœtti cetla, að alþýða manna sýndi fyllstu gcetni i meðferð fjár og fylgdist af gaumgœfni með verðlagi til að gera innkaup sin þar, sem ódýrast er. Ýmis- legt bendir til þess, að svo sé ekki, þótt ótrúlegt kunni að virðast. Er illt til þess að vita, því kæruleysi almennings um verðlag gerir alla viðleitni til að halda því niðri stór- um erfiðari og dregur úr áhuga þeirra manna í verzlun- inni, sem mest gera til að selja nauðsynjar ódjirt. Það er skoðun margra manna, sem eru nákunnugir verzlunarháttum fjölskyldna, sérstaklega i þéttbýli þar sem verzlað er daglega eða oft á dag, að húsmceður séu ótrúlega skeytingalausar um verðlag og geri innkaup sín fyrst og fremst i ncestu búð, hvað sem verðlagi liður. Geta starfsmenn kaupfélagsbúða, og sjálfsagt aðrir verzl- unarmenn einnig, bent á ýms athyglisverð dæmi, sem sanna þetta. Fyrir nokkru keypti innflutningsdeild SÍS molasykur frá Englandi fyrir mjög hagstætt verð. Þegar sykurinn kom fram i búðirnar, kostaði hann hjá SÍS-Austurstrceti, KRON og Kaupfélagi Hafnfirðinga 6,65—6,70 kr. kg. Um sama leyti kostaði molasykur i kaupmannaverzlunum i Reykjavik og Hafnarfirði kr. 8,05—8,10 pr. kg. og var þvi 1,40 kr. ódýrari i samvinnubúðunum. Þetta sérstaka verð var rækilega auglýst, t. d. í útvarpi, en samt jókst salan á molasykrinum í áðurnefndum samvinnuverzlun- um lítið sem ekkert. Þetta sannar mjög áþreifanlega, að almenningur í Reykjavík og Hafnarfirði sinnti því engu, þótt hann gæti fengið svo nauðsynlega vöru og ástfólgna íslendingum sem molasykur kr. 1,40 pr. kg. ódýrari í einni verzlun en annari. Þetta eina dæmi talar sínu máli og virðist sýna reglu en ekki undantekningu um innkaupahætti almennings. Um það bera vitni fjölmargir menn nákunnugir, sem á degi hverjum sýsla við húsmæðurnar í matvöruverzlun- um og verða sjálfir að þekkja verðið, þótt viðskiptavin- irnir hafi allt of oft takmarkaðan áhuga á því. Ef allt tal íslendinga um baráttu gegn dýrtið og hag- kvæma verzlun er ekki innantóm orð, verður slikt ástand sem þetta að breytast. Húsmæðurnar og aðrir þeir, sem gera innkaup, verða að temja sér að bera saman verðlag og vita á því glögg skil. Til þess að hjálpa þeim í þessu tilliti eru til dæmis birtir listar yfir hæsta og lægsta verð á vöru á ýmsum stöðum, sem geta verið nokkur leið- beining. V Þetta vandamál á tvímælalaust rót sína að rekja til þess, að almenningur í landinu hefur búið við sæmileg lífskjör, haft allmikið fé milli handa, en misst alla virð- ingu fyrir peningum vegna dýrtíðarinnar. Þannig þrífst dýrtíðin á sjálfri sér, því virðingarleysi fyrir peningum og kæruleysi um verðlag stuðlar mjög að enn aukinni dýrtíð. Hér getur hver og einn spyrnt við fœti. Hvert heimili verður að skapa festu i meðferð fjár, hvort sem það er meira eða minna i liverri buddu. Neytendur sjálfir verða að bera saman verð á einum stað og öðrum og kaupa þar, sem ódýrast er, en láta þá, sem dýrara selja kurteis- lega vita, hvers vegna ákveðnar vörutegundir eru ekki keyptar hjá þeim. Herforingjar einir geta ekkert stríð unnið án hermanna sinna. Eins geta ráðamenn landsins ekki sigrazt á dýr- tíðinni, ef hinir óbreyttu borgarar eru ekki viðbúnir að styðja þá og efla um leið eigin hag með árvekni í verð- lagsmálum. SAMVINNAN 3

x

Samvinnan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.