Samvinnan - 01.07.1957, Side 5
framkvæmdir, svo sem stofnun sæl-
gætisverksmiðju í Borgarnesi og sölu-
miðstöðvar fyrir mjólkurbú kaupfé-
laganna. Sigurður kvað enga ástæðu
til að örvænta, þótt á móti blási og
verzlunarárferði sé ekki eins gott og
verið hefur, ef samvinnumenn aðeins
standa saman um félög sín.
SKÝRSLA FORSTJÓRA
Þá flutti Erlendur Einarsson for-
stjóri skýrslu sína og var hún í senn
yfirgripsmikil lýsing á starfsemi Sam-
bandsins árið 1956 og þeim vanda-
málum, sem við var að stríða, og
voldug hugvekja um hina víðtæku
starfsemi samvinnuhreyfingarinnar.
Erlendur byrjaði á því að lýsa verzl-
unarháttum ársins almennt, en þeir
voru engan veginn hagstæðir fyrir
viðskiptalífið, og reyndist sá örðug-
leikinn verztur í vaxandi dýrtíð, hve
skortur var mikill á rekstursfé. Þetta
kvað Erlendur nú vera alvarlegasta
vandamál samvinnufélaganna og
mundi það reynast þeim mikill fjötur
um fót, ef ekki tækist að bæta úr.
Skortur á rekstursfé Iamar ekki að-
eins framkvæmdir allar, heldur dreg-
ur hann úr sjálfri verzluninni, sem þarf
að sjálfsögðu mikið fé, ekki sízt með
stórhækkandi tollum og gjöldum, sem
innflytjendur verða að greiða strax
við móttöku vörunnar.
Efm rekstur Sambandsins sagði
Erlendur, að þar hefðu ekki verið
gerðar teljandi breytingar, enda væri
nú skipulag stofnunarinnar komið í
nokkuð fast form eftir hin miklu um-
brot, sem verið hafa þar og annars
staðar síðan í styrjaldarlok.
Tekjuafgangur Sambandsins á
Veður var með eindrcmum gott jundardagana,
logn og hiti. Myndin er af kaupfclagsstjóra-
fundinum. Menn héldu á stólunum út og fund-
urinn var haldinn undir berum himni.
árinu var 2,3 milljónir króna eft-
ir að afskrifað hafði verið um 12,4
milljónir. Af ýmsum ástæðum
viðskiptalegs eðlis voru þó til
ráðstöfunar nokkru meiri pening-
ar en þetta, og samþykkti aðal-
fundurinn síðar, að úthluta í
stofnsjóði kaupfélaganna 3,7
milljónum króna.
Erlendur ræddi nokkuð um fram-
kvæmdir, bæði þær, sem unnt var að
ráðast í, og aðrar sem verið er að
undirbúa eða dregizt hafa af ýmsum
ástæðum. Nam hann fyrst staðar við
kaup Elamrafells, sem eru mesta fyrir-
tæki fjárhagslega sem samvinnumenn
hér á landi hafa ráðizt í. Drap Erl-
endur á þær miklu deilur, sem risið
hafa um skipið og rekstur þess, og
benti hann á, að það væru höfuðstað-
reyndir í málinu, að olíuflutningar
þurftu vegna Hamrafells ekki að
stöðvazt til landsins á vertíðinni og
Hamrafell flutti olíuna á miklu lægra
verði en nokkur kostur var að fá er-
lend leiguskip á þeim tíma. Þannig
sparaði skipið landsmönnum stórfé.
Meðal mála, sem enn hafa ekki
komizt fram, nefndi forstjórinn kjöt-
iðnaðarstöð í Reykjavík, sem sam-
vinnufélögin hafa lengi haft mikinn
áhuga á og hafa barizt mikið fyrir.
Enn hefur ekki, eftir margra ára til-
raunir, tekizt að fá endanlega lóð fyrir
þessa bráðnauðsynlegu stofnun, sem
ætti að verða báðum, framleiðendum
og neytendum, til gagns.
Erlendur taldi það nú vera aðaltak-
mark samvinnufélaganna að auka
vörusölu sína. Hann benti á þá stað-
reynd, að framleiðslan er lítils virði,
ef salan kemur ekki á eftir, og vaxandi
tækni við framleiðslu á síðustu árum
hafa gert söluna — dreifingu vörunn-
SflMVINNAN 5