Samvinnan - 01.07.1957, Page 6
ar — æ mikilvægari. Erlendur kvaðst
vongóður — þrátt fyrir fjárhagserfið-
leikana í svipinn, um að það takmark
mundi nást að sala ykist verulega hjá
Sambandinu og kaupfélögunum, án
þess að tilkostnaður þyrfti að aukast
mikið. Sambandið kvað hann nú
þannig skipulagt, að það gæti tekið
að sér miklu meiri sölu án þess að
auka verulega kostnað, og hlyti að
vera hagkvæmt fyrir alla aðila, að
svo yrði.
Það voru höfuðeinkenni í
rekstri Sambandsins síðasta ár,
sagði Erlendur, að sala á innlend-
um framleiðsluvörum jókst veru-
lega og varð velta útflutnings-
deildar meiri en nokkru sinni, um
300 milljónir, og sala á fram-
leiðsluvörum verksmiðjanna
hefði einnig aukizt. Hins vegar
hefði veltufjárskorturinn valdið
því, að innflutningurinn hefði
minnkað.
Ályktanir aðalfundar SÍS:
Samvinnumenn gefa 100.000 kr.
til handritabyggingar
Á aðalfundi Sambandsins flutti Bjarni Bjarnason svofellda tillögu
ásamt þeim Finni Kristjánssyni og Eiríki Þorsteinssyni:
„Aðalfundur SÍS, haldinn í Bifröst 26. og 27. júní 1957, lcetur í Ijós
ánœgju sína yfir því glcesilega átaki og þeirri miklu framkvcemd að
kaupa olíuskipið Hamrafell.
Jafnframt lýsir fundurinn undrun sinni á þeim óréttmceta áróðri
og þeirri furðulegu árás, sem þetta merkilega þjóðþrifafyrirtceki hefir
mcett.“
Aðalfundur Sambandsins samþykkti fjórar tillögur í mikilvægum
menningarmálum þjóðarinnar, og fara þær hér á eftir:
Guðmundur Guðjónsson, Saurum, bar fram svohljóðandi tillögu:
„Aðalfundur SÍS, 1957 lýsir yfir stuðningi við þá hugmynd, að
stofnaður verði og starfrcektur frjáls lýðháskóli.“
Sr. Sigurður Stefánsson, Möðruvöllum, mælti fyrir eftirfarandi
ályktun, er hann lagði fyrir fundinn:
Aðalfundur SÍS, haldinn að Bifröst dagana 26. og 27. júní 1957,
fagnar því, að handritamálið skuli hafa verið tekið upp að nýju m. a.
með þingsályktun síðasta alþingis og vcentir þess, að þjóðin öll fylki
sér um þetta mikla menningar- og metnaðarmál sitt.“
í sambandi við þessa ályktun var síðar á fundinum samþykkt eftir-
farandi tillaga frá stjórn SÍS:
„Aðcdfundur Sambands ísl. samvinnufélaga, haldinn að Bifröst
dagana 26. og 27. júní 1957, samþykkir að Sambandið leggi fram til
fyrirhugaðrar byggingar yfir Arnasafn kr. 100.000“
Loks var samþykkt eftirfarandi tillaga frá Guðmundi V. Hjálmars-
syni, Salthólmavík:
„Aðalfundur SIS, haldinn í Bifröst 26. og 27. júní 1957, felur stjórn
Sambandsins að athuga á þessu ári möguleika á því að vernda frá
glötun bcejarhús að Þverá í Laxárdal, þar sem Kaupfélag Þingeyinga
var stofnað 1882.“
SKÝRSLUR FRAMKVÆMDA-
STJÓRANNA
Að lokinni skýrslu forstjóra fluttu
framkvæmdastjórar Sambandsins
skýrslur hver um sína deild: Fyrst
Helgi Pétursson fyrir útflutningsdeild,
Helgi Þorsteinsson fyrir innflutnings-
deild, Hjalti Pálsson fyrir véladeild,
Hjörtur Hjartar fyrir skipadeild og
Harry Frederiksen fyrir iðnaðardeild.
Þökkuðu forseti fundarins og fundar-
menn skýrslurnar hver um sig, enda
höfðu þær á hreinskilinn og skýran
hátt frá að segja geysimiklu starfi,
baráttu við margvíslega erfiðleika, en
í heild meiri árangur í framleiðslu og
vörusölu en nokkru sinni fyrr.
Umræður hófust þegar að loknum
flutningi skýrslanna og tóku meðal
annars þessir til máls: Guðmundur
Guðjónsson, Saurum, Jóhann Þor-
valdsson, Siglufirði, Finnur Kristjáns-
son, Húsavík, Jón Grímsson, Reykja-
vík, Jakob Frímannsson, Akureyri,
Geirmundur Jónsson, Hofsósi og fram-
kvæmdastjórar, sem svöruðu og gáfu
skýringar eftir tilefni umræðnanna.
FJÁRMÁLIN RÆDD
Síðari daginn hófst fundurinn á
því, að fjármál Sambandsins og sam-
vinnufélaganna voru tekin til um-
ræðu, en þau eru nú, vegna hins vax-
andi skorts á rekstursfé, eitt alvarleg-
asta vandamál hreyfingarinnar. Hafði
síðasti aðalfundur skipað nefnd til að
fjalla um þau mál, sérstaklega leiðir
til fjáröflunar, og hafði formaður
nefndarinnar, Helgi Þorsteinsson
framkvæmdastjóri, orð fyrir henni.
Lagði hann fram ítrekaðar tillögur,
sem samþykktar voru eftir nokkrar
umræður. í þeim umræðum tóku til
máls Eysteinn Jónsson, fjármálaráð-
herra, Bernhard Stefánsson, alþingis-
maður, Guðmundur Guðjónsson,
Saurum, Hjörtur Helgason, Sand-
gerði, Benedikt Gröndal, Reykjavík
og forstjóri.
FRÆÐSLUMÁLIN
Fræðslumál samvinnuhreyfingar-
innar voru að vanda tekin til um-
ræðu á fundinum, og flutti forstöðu-
maður fræðsludeildar, Benedikt
Gröndal, skýrslu um þá starfsemi á
liðnu ári, en hún hafði verið meiri og
margþættari en fyrr. Sérstaklega fagn-
(Framh. á bls. 25)
6 SAMVINNAN