Samvinnan - 01.07.1957, Blaðsíða 11
STOFUBLOM
Kafli úr nýrri bók
Ingólfs Davíðssonar
Almenn rœktunaratriði.
Birtan er öllum gróðri nauðsynleg.
Aðeins þegar bjart er getur gróðurinn
aflað sér næringar úr loftinu. Sumarið
er stutt hér á landi, en um hásumarið er
bjart dag og nótt, og bætir það mikið
úr skák. Birtan er mun minni inni en
úti. Bezt er hún auðvitað í gluggunum.
Frá ágústlokum og fram í apríl veitir
innijurtunum ekki af að njóta allrar
þeirrar birtu, sem kostur er á. Jurtir,
sem blómgast, þarfnast að jafnaði
mestrar birtu, einkum meðan blóma-
brum eru að myndast. Sumar blaðjurt-
ir, t. d. burknar, bergflétta, ákúba,
kóngavín o. fl., þola betur litla birtu og
geta þrifizt langt inni í stofu eða í
austur- og vesturgluggum eða jafnvel
norðurgluggum. Hitinn er einnig mjög
mikilsvert atriði og þarj að vera í sam-
rœmi við birtuna. Birtan er af skornum
skammti á veturna, og þá má heldur
ekki vera mjög heitt á gróðrinum, ef
vel á að fara. Langflest stofublóm þríf-
ast bezt við 10—15° hita á nóttum og
5° meirí hita á daginn. Flest þola, að
næturhitinn lækki stundum niður í 7°.
Flestum tegundum er eðlilegast að sval-
ara sé á nóttunni en á daginn. Oft er
miklu kaldara í gluggunum, einkum út
við rúðurnar, heldur en inni í stofunni,
þegar frost er úti. Getur verið nauðsyn-
legt að færa jurtirnar úr glugganum, t.
d. þegar mjög kalt er á nóttum. Hægt
er líka að leggja dagblöð milli jurtanna
og rúðanna á kvöldin. Dragsúgur kem-
ur jurtunum illa. Gluggar geta verið
óþéttir, og varúðar þarf að gæta þegar
þeir eru opnaðir í köldu veðri. Stofu-
blómin eru flest suðræn og viðkvæmari
fyrir súg og kulda heldur en íslenzkur
gróður. Ef blómin standa nálægt mið-
stöðvarofni, þarf að hlífa þeim með
skerm eða öðru fyrir of mikilli útgeislun
hitans. A sumrin er gott að setja blómin
út í úðarígningu, ef hlýtt er í veðri. Þau
hreinsast og verða bragðlegri fyrir vikið.
Jarðvegsrakinn og loftsrakinn.
Jurtirnar þarfnast mismikils raka. En
Það er kunnara en svo
að frá þurfi að segja,
hversu falleg stofublóm
geta gerbreytt hibýlum
manna. Þau auka hlý-
leikann og gæða vistar-
verurnar lífi og litum.
Mjög er það eftirtakan-
legt, hvað blóm fara vel
með nútima húsgögn-
um og húsbúnaði.
Bók Ingólfs Daviðs-
sonar verður kcerkomin
öllum þeim, sem vilja
fegra hibýli sin með
blómum.
Myndin er af Alþa-
fjólu.
Zebrakaktus.
ef moldin þornar um of, verða jurtirnar
máttvana og hanga niður, einkum í
toppinn. Síðan taka blöðin að falla, og
jurtin getur dáið úr þrosta. ITættan er
auðvitað meiri í þurru lofti en röku. í
upphituðum stofum er í raun og veru
þurrt eyðimerkurloftslag, sem fjölmörg
blóm þola illa. En sömu tegundir geta
þrifizt ágætlega í hinu raka og hlýja
lofti gróðurhúsanna og gróðurskálanna.
Bæði pottajurtir og afskorin blóm auka
ögn raka loftsins. Hægt er að auka loft-
rakann dálítið með því að láta gljúp
leirílát með vatni í standa á miðstöðvar-
ofni. Á stöku stað er hafður zinkkassi
í gluggakistunni. Á botninn eru látnir
smásteinar eða möl, og jurtapottarnir
settir þar á. Steinunum eða mölinni er
haldið rakri, til þess að stöðugt gufi upp
vatn og loftið verði rakt.
Vökvunin er mjög mikilvægt atriði.
Vökvunarvatnið ætti ekki að vera ís-
kalt, heldur aðeins ylvolgt. Heitt á það
ekki að vera. Regnvatn er auðvitað
ágætt. Ekki er hægt að gcfa neinar
ákveðnar reglur um það, hve oft eða
mikið skal vökva. Það er mjög háð ýms-
um skilyrðum, og verða menn þar að
læra af reynslunni. En vökva skal vand-
lega í hvert skipti, svo að öruggt sé, að
öll moldin blotni. Ef vatnið hripar strax
niður úr pottinum viðstöðulaust, er það
vottur þess, að moldin hefur verið gegn-
þurr. Má þá láta pottinn standa dálitla
stund í vatni, svo að moldin geti drukk-
ið í sig raka. Minna þarf jafnan að vökva
á vetuma en á sumrin. Jurtir í sólar-
glugga þurfa auðvitað meira vatn en
þær, sem standa í skugga eða við norð-
urglugga. Eins þarf meiri vökvun í sól-
skini en í dumbungsveðri. I sólskini þarf
jafnvel að vökva blaðmiklar jurtir
tvisvar á dag. I sterku sólskini getur
verið til bóta að skyggja á pottana sjálfa,
SAMVINNAN 11