Samvinnan - 01.07.1957, Síða 12
Begónia, haageana.
svo að moldin í þeim og ræturnar þorni
og hitni ekki um of. Ekki skal láta vatn
standa í undirskálum til lengdar (nema
hjá einstaka jurt, t. d. Calla). Gott er
að hafa 2—5 1 vatnskönnu til að vökva
blómin með ofan í pottana. A hverjum
morgni þarf að líta eftir því, hvort þörf
sé að vökva. Hægt er að slá létt á pott-
ana með hnúunum til athugunar. Ef
tómahljóð heyrist í þeim, er þörf á að
vökva. Jurtunum kemur vel að já vatns-
úða öðru livoru á hlöðin. Gott er að
setja þær út í hlýja úðarigningu. Hægt
er að úða yfir þær með blautum klút, t.
d. í baðkerinu eða annars staðar, þar
sem vatn má ýrast niður. En þægilegast-
ar eru litlar blómadœlur (vatnsbyssur).
Kemur vatnið þá eins og regnúði á jurt-
irnar. Mest er þörf á úða í heitu veðri.
Jafnan skal nota ylvolgt vatn, eins og
við vökvunina. Hægt er að þvo blöð
sléttblaða jurta stöku sinnum varlega
með mjúkum klút eða svampi.
Mold og áburður.
Hentugur jarðvegur er mikil nauðsyn
fyrir þrif gróðursins. En ekki hæfir öll-
um gróðri hið sama, t. d. hvað sýrustig
jarðvegsins snertir. Mýrajörð, mó-
mylsna og lyngmold eru súrar jarðvegs-
tegundir. Gömul gróðurhúsamold er líka
oft súr, en engan veginn ætíð. Skelja-
sandur er aftur á móti kalkauðugur.
Flest stofublóm þrífast í vermireitamold
eða góðri garðmold. Oft er til bóta að
blanda dálitlu af sandi saman við gróð-
urmoldina. En sumum tegundum kemur
bezt að blandað sé saman við öðrum
jarðvegstegundum, einkum laufmold,
safnhaugamold, grasrótarmold, mómold
og lyngmold. Er þessa getið við hverja
jurtategund.
Þar sem tré eða runnar vaxa er hægt
að safna fallna laufinu á haustin saman
í hrúgu, láta það rotna og verða að lauf-
mold. Hún er ekki kraftmikil, en samt
ágæt saman við aðra mold handa ýms-
um jurtum. Safnhaugamold er ekki
ósvipuð laufmoldinni. Ulgresi, grasrót-
artægjum, matarleifum o. fl. rotnanleg-
um úrgangi er safnað saman í haug á
afviknum stað og látið rotna í 1—2 ár.
Gott er að blanda dálítið af kalki sam-
an við til að flýta rotnuninni. Þarf að
umstinga hauginn einu sinni eða tvisvar
á sumrin. Safnhaugamoldin er frjósöm,
gerlaauðug og einkar hentug gróðrinum.
Grasrótarmold er sumum jurtum sérlega
hentug saman við aðra mold. Hana má
fá með því að safna þökum eða gras-
hnausum saman í haug og láta rotna
eitt eða tvö ár.
Mómold, gömul og mulin (mómylsna),
er góð saman við aðrar jarðvegstegund-
ir, t. d. handa kaktusum o. fl. safajurt-
um. Lyngmold er notuð handa sumum
pottajurtum, blönduð annarri mold.
Lyngmold fæst á sama hátt og grasrót-
armold. Þökur eru skornar á lyngi vöxnu
landi, safnað saman í liaug og látnar
rotna í eitt eða tvö ár. Lyngþökurnar
eru fremur lausar í sér, og má ná nokk-
urri, sæmilegri Iyngmold með því að
hrista þær. Sandur og möl gera moldina
hlýja og gljúpa. Sandurmn (og mölin)
heldur illa í sér áburðarefnum og vatni,
en er laus í sér og bætir eðlisásigkomu-
lag jarðvegsins.
Sandi er iðulega blandað saman við
pottamold. Notaður er holtasandur og
stundum skeljasandur. Foksandur er of
smáger og sjávarsandur saltur. Er selt-
an mjög lengi að rigna úr honum. Gróð-
urmold (vermireitamoldin, garðmold,
túnmold) er frjósöm og góð handa flest-
um gróðri. Sandur bætir hana, svo að
hún verður síður loftlítil, köld og súr.
Græðlingar eru t. d. venjulega gróður-
settir í mjög sendna mold.
Aburður. Rætur pottajurta hafa
venjulega fremur litla mold úr að moða.
Ríður á, að hæfilegt sé af nauðsvnlegum
næringarefnum í hinum litla moldar-
kekki, sem þær hafa til umráða. Sé mold-
in ekki frjósöm, þarf venjulega að blanda
áburði saman við hana, áður en hún er
sett í pottana. Gæta verður þess, að
áburðurinn sé ekki of megn, því að þá
getur hann skemmt ræturnar. Gömul
kúamykja er góður áburður, mulin og
vandlega hrærð saman við moldina.
Hálfbrunnið hrossatað sömuleiðis, og
gamalt, mulið sauðatað. Nýr búfjár-
áburður er varasamur vegna þess, hve
sterkur hann er. Áburðarlögur er gefinn
mörgum jurtum öðru hverju um vaxt-
artímann. Er mykjuvatn gott til þeirra
(Frh. á bls. 25)
Bók Ingólfs Daviðs-
sonar, Stofublóm, er
236 blaSsiður og
ríkulega myndskreytt.
Þar er talinn upp
fjöldi blómategunda
og meS hverju blómi
er nákvcem frásögn
um birtu, vökvun.
mold, áburð og ann-
aS sem jurtina varð-
ar.
Blómið á mynd-
inni heitir SólbriíS-
ur.
12 SAMVINNAN