Samvinnan


Samvinnan - 01.07.1957, Síða 13

Samvinnan - 01.07.1957, Síða 13
Guðmundur á Hvitárbakka. Myndin er tekin nú i vort Skáld bar fram þá ósk, að íslend- ingar mættu liafa „menn að missa, meiri og betri en aðrar þjóðir." Sum- um finnst ef til vill kenna yfirlætis í óskinni, kannski þess að litið sé niður á aðrar þjóðir, aðra menn. Svo þarf ekki að vera og mun ekki vera. Skáld- ið biður þess, að landar sínir þrozki með sér þá eiginleika og hæfileika, sem geri þá meiri og betri en aðra menn. — Slíka menn er að sjálfsögðu sárt að missa, en hitt gleðiefni meira að hafa átt þá. — Ósk skáldsins hefur rætzt í þessu byggðarlagi. — Það hef- ur misst mann, sem engum blandast hugur um, að var meiri og betri en flestir menn aðrir, Guðmundur Jóns- son hreppstjóri á Hvítárbakka. ❖ Svo sem venja er til skal þessum kveðjuorðum valinn texti. Líf manns- ins, sem við minnumst í dag, ein- kenndist af hlýðni við boð Krists: „Það sem þér hafið gert einum þess- ara minna minnstu bræðra, það hafið þér gert mér.“ Sá þekkti ekki Guð- mund á Hvítárbakka, sem vissi ekki, að samúðin var ríkust allra tilfinn- inga og undirstaða alls annars í lífi hans. Það var ekki fátítt, að vanda- mál og erfiðleikar vandalausra héldu vöku fyrir honum, viðfangsefni, sem honum bar engin skylda til að sinna að manna dómi. En hann, sem var störfum hlaðinn umfram flesta, gat ekki gleymt bróður í raunum, ekki Að eiga menn að missa meiri og betri en aðrar þjóðir Kveðjuorð sr. Guðmundar Sveinssonar til Guðmundar Jónssonar á Hvítárbakka notið hvíldar fyrir neyð, sem ekki hafði verið bætt úr. — Þetta var meg- inástæðan til þess, hve fús hann var að starfa fyrir aðra. „Það sem þér haf- ið gert einum þessara minna minnstu bræðra, það hafið þér gert mér.“ — Störf Guðmundar á Hvítárbakka voru unnin til að lilýðnast því bezta í sálu hans sjálfs, samúðinni. — Hann bað þess ungur maður, að sér mætti auðnast í lífinu að þrozka með sér þrjá eiginleika, svo að hann yrði vit- ur, sterkur og kærleiksríkur. Ég hygg það allra mál, að Guðmundur hafi hlotið bænheyrslu. * Guðmundur Jónsson er fæddur að Reykjum í Lundarreykjadal 23. apríl 1890. Sjö ára flytzt hann til Reykja- víkur og elzt upp á Laugalandi í ná- grenni bæjarins. Hann fer sextán ára gamall til náms að Hvítárbakka og er þar tvo vetur. Að námi loknu held- ur liann utan og dvelur í Danmörku og Svíþjóð við nám og störf í þrjú ár. En sumarið 1911 hverfur hann heim aftur. Gerist hann þá starfsmaður hjá Búnaðarsambandi Borgarfjarðar og vinnur hjá Búnaðarsambandinu og við vegagerð — einkum í Reykholts- dal — fram til ársins 1915, að hann kaupir jörðina Ytri-Skeljabrekku í Andakílshreppi og byrjar búskap þar. — 12. júní 1921 gengur hann að eiga Ragnheiði Magnúsdóttur frá Gils- bakka. Þau hjónin eignuðust tvo syni, Magnús, verzlunarmann í Reykja- vík og Jón, sem síðustu árin hefur búið ásamt föður sínum á Hvítár- bakka. Árið 1926 fluttust þau hjónin, Guð- mundur og Ragnheiður, frá Ytri- Skeljabrekku og settust að á Hvítár- bakka. Það var þá lítil jörð, en skóla- setur. Guðmundur keypti jörðina, jiegar skóli var fluttur að Reykholti, og bjó þar síðan. — Hin litla jörð varð í höndum Guðmundar og konu hans að stórbýli, einu af höfuðbólum Borg- arfjarðarhéraðs og hann liéraðshöfð- ingi. — Ræktunarframkvanndir Guð- mundar á Hvítárbakka eru einar ær- ið ævistarf og óvenjulegt, en þó er það svo, að þær hverfa gersamlega í skugga annara starfa hans og mun fá- um þær fyrst í hug koma, þegar Guð- mundar er minnzt. — Frá önn hvarf hann samtíðarmönnnm sínum, varð bráðkvaddur, er hann sat fund í Bún- aðarsambandi Borgarfjarðar síðastlið- inn laugardag. Það var síðust ræða hans í lifanda lífi að hvetja til átaka í sambandi við framhaldsmenntun búfræðinga. Og það var síðust kveðja hans að gera veg þessa byggðarlags sem mestan í því máli. Menntun bú- fræðinga var honum hugleikin, — enda hafði hann verið prófdómari við Bændaskólann á Hvanneyri í 40 ár. Þegar hugsað er til Guðnrundar, kemur foringinn fyrst í hug. Þar finnum við, sem fjar honum stönd- um, stærst skarð fyrir skildi nú. Okk- ur er sú hugsun framandi, að hér í byggðarlaginu verði stórmálum hrundið í framkvæmd án þess að full- tingis hans njóti við. Og okkur finnst dimma fyrir augum við til- hugsunina um það, að liinn mikli bjartsýnismaður er horfinn úr hópi okkar, liann sem alltaf sá ráð og leiðir og lét aldrei hugfallast. — Það yrði löng upptalning, ef geta ætti allra þeirra félaga og málefna, sem Guð- mundur á Hvítárbakka hefur starfað fyrir og unnið að. — Sú venja skap- aðist fljótlega að fela honum þau störf í þágu hrepps og byggðarlags, SAMVINNAN 13

x

Samvinnan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.