Samvinnan - 01.07.1957, Page 15
Samvinnutryggingar endurgreiða 2.675.000 kr.
Jón Ólafsson
framhvœrndastjóri
Samvinnutryggingar munu á þessu
ári endurgreiða hinum tryggðu
2.675.000 krónur, sem er tekjuafgang-
ur ársins 1956. Að því er Jón Ólafsson,
framkvæmdastjóri félagsins, skýrði
aðalfundi þess frá í Bifröst, var tí-
unda starfsár félagsins í fyrra hið
langstærsta og námu iðgjaldatekjur
yfir 43 milljónum króna, sem er 37,2%
aukning frá árinu 1955.
Með þessari úthlutun tekjuafgangs,
sem skipt verður milli beinnar endur-
greiðslu og stofnsjóðs, hafa Sam-
vinnutryggingar samtals endurgreitt
félagsfólki sínu 12,3 milljónir króna,
síðan byrjað var að endurgreiða tekju
afgang árið 1949. Að þessu sinni mun
ekki verða unnt að endurgreiða neitt
fyrir bifreiðatryggingar, þar sem tap
varð á rekstri þeirra, þrátt fyrir ið-
gjaldahækkun á árinu.
í skýrslu sinni til aðalfundarins
benti Jón Ólafsson á mikla hækkun
tjónagreiðslna, sem orðið hefði hjá
Samvinnutryggingum. Nam tjón nú á
árinu 33,6 milljónum króna, sem er 18
milljónum hærra en næsta ár á und-
an. Var aukning tjóns tiltölulega mest
í brunadeild, en mikil í öllum deild-
um, ekki sízt bifreiðadeld. Benti Jón
á, að þessi mikla hækkun gæfi tilefni
til stóraukinnar varúðar til að forðast
slys og eldsvoða. Þó ætti verðbólga
þátt í því, hve dýrt væri að bæta tjón-
in og hækkaði þannig verulega tjón-
upphæðina. Jón benti á, að það væri
skammgóður vermir, þótt endurtrygg-
ingafélög bættu mikil tjón. Ef tjón
haldast mikil eða vaxa frekar, hljóta
endurtryggjendur að krefjast aukinna
iðgjalda, þannig að fyrr eða síðar
verða hinir tryggðu að greiða hærri
iðgjöld, ef tryggingum þeirra fylgir
aukin áhætta.
Samvinnutryggingar hafa nú bruna
tryggingar á skyldutryggðum fast-
eignum í 85 hreppum á landinu. Virð-
ist félaginu sem tryggingaupphæð
eigna sé yfirleitt of lág miðað við
verðgildi peninga og reynist ófull-
nægjandi ef á reynir.
Fundarstjóri á aðalfundi Samvinnu
trygginga var Þórarinn Eldjárn frá
Tjörn, en fundarritarar þeir Steinþór
Guðmundsson, Reykjavík og Óskar
Jónsson frá Vík. í framkvæmdastjórn
félagsins eru auk Jóns Ólafssonar þeir
Jón Rafn Guðmundsson og Björn
Vilmundarson.
Skýrslu stjórnarinnar flutti Erlend-
ur Einarsson, formaður hennar, en
auk hans eiga sæti í stjórn trygging-
anna Jakob Frímannsson, ísleifur
Högnason, Karvel Ögmundsson og
Kjartan Ólafsson.
AÐALFUNDUR ANDVÖKU.
Aðalfundur líftryggingafélagsins
Andvöku var einnig haldinn í Bifröst
í júní. Framkvæmdastjóri þess félags
er einnig Jón Ólafsson og stjórn hin
sama og hjá Samvinnutryggingum.
Gefin voru út 592 líftryggingaskír-
teini á árinu að upphæð 13 milljónir
króna. Eru þá hjá félaginu 8.227 líf-
tryggingaskírteini og tryggingarstofn
inn 85,5 milljónir króna.
Rekstursafkoma félagsins varð mjög
góð. Dánarbætur voru tiltölulega mjög
lágar. Tryggingarsjóður var aukinn
mjög mikið og stendur hann í mjög
hagstæðu hlutfalli við skuldbindingar
félagsins.
Bankastjóri i New-York hefur IdtiÖ byggja hlööu
og fjós d búgaröi sinum eftir þessari teikningu.
Þar er um aÖ rœöa nýjung, sem ekki er vitaÖ til
aÖ hafi veriö reynd annars staöar. Byggingin er
meÖ braggalagi og hlaöan er byggÖ utan um
fjósiÖ. Lausagöngufjós er þetta aÖ sjdlfsögöu og
kýrnar auk þess d sjdlfeldi. Eins og teikningin
sýnir er heyinu bldsiÖ meÖ venjulegum heyblds-
ara inn um op d þaki hlööunnar, ÞaÖ var tekiÖ
fram, að hlaöan rúmaöi heyfeng handa öllum
kúm fjóssins. HeyiÖ sigur svo niöur meÖ hlið-
unum, en þar eru op inn í fjósið og kýrnar
ganga þar að og fd sér tuggu eftir þörfum.
Þetta er i amerisku blaöi kallað bylting i land-
búnaðinum, en hœtt er viÖ aö mörgum islenzk-
um bónda þœtti margt strdiÖ fara fyrir litið.
Auk þess eru engar likur til aö islenzka taöan
sigi þannig niöur jafnóðum, enda er þetta meira
birt hér til gamans, heldur en til fyrirmyndar
— þótt það væri aÖ sjdlfsögðu mjög ánœgju-
legt, ef þetta væri hægt.
Sjálfeldishlaða og lausagöngufjós
Amerísk nýjung í landbúnaði
• --/
i
/
\ /
, \
V
SAMVINNAN 15