Samvinnan


Samvinnan - 01.07.1957, Qupperneq 17

Samvinnan - 01.07.1957, Qupperneq 17
stöðum 1873, og hefur liann því ekki getað verið nema rösklega tvítugur, er hann kom í dalinn. En lerillinn var í hálfa öld, vistaskipti á milli fremstu bæjanna í dalnum: Halldórs- staða, Mýrar, Stórutungu, Víðikers, Grjótárgerðis, Bjarnastaða og Lund- arbrekku. Þetta var hans „hringur". — Jón andaðist 29. ágúst 1932, ári betur en áttræður. Síðustu árin dvaldi hann að Stórutungu hjá Sveini Pálssyni og Vil- borgu konu hans. Önnuðust þau hann af drengskap og manngæzku í ellinni. í Stórutungu hafði Jón kind- ur sínar í litlum hraunhelli, meðan hann gat liirt þær sjálfur. Hellir þessi er nú löngu aflagður sem fjárhús, en notaður sem jarðeplageymsla, og spýr- ar þar aldrei eða frýs. Jón var raunar mjög orkulítill til stritvinnu. Þess vegna var honum falið að annast um kvíaær á sumrum, frekar en heyvinnu. Hann sat ærnar oft dag og nótt, framan af sumrinu. Svefntíminn heima í rúminu var þá eigi nema meðan á mjöltum stóð, kvelds og morgna, en hann mun oft hafa blundað yfir ánum í hjásetunni stund og stund. Fjárhunda átti hann jafnan, er fylgdu honum hvert er hann fór. Stundum átti hann hest, en jafnan nokkrar kindur. Þegar leið á sumar, og ær fóru að spekjast, fékk Jón leyfi húsbænda að heyja handa skepnum sínum. Jafnan þurfti þó að binda heyið fyrir hann og flytja heim. Jón þurfti langa liríð að sjá fyrir móð- ur sinni gamalli og veilli. Eftir hon- um var haft: „Hver hefur sinn djöf- ul að draga og ég móður mína“. Móð- ir hans hafði hinsvegar mikið álit á Jóni sínum. Einu sinni eignaðist Jón skjóttan hest, sem flestir töldu að verða mundi of baldinn fyrir liann. Þá sagði Anna gamla: „Það gera ekki aðrir mann úr Skjóna, ef Jón minn getur það ekki“. Jón var samlialdssamur á fjármuni, og hafði nóg fyrir sig að leggja á elli árunum og þáði aldrei af sveit. III. Hér fer á eftir lýsing Tómasar Sigurtryggvasonar á Jóni. Tómas var alinn upp á Litluvöllum í Bárðardal og man mjög vel Jón. Mér er hann einnig mjög minnisstæður og fellst al- veg á lýsingu Tómasar. Jón var nálægt meðalmaður á hæð, en sérlega grannur og holdskarpur, og var það tilefni viðurnefna. Svo var sem hann kiknaði í knjáliðum við hvert spor. Skolhærður var hann, ennið allhátt, en mjótt, sem og allt andlitið. Kinnfiskasoginn, magur- leitur og þunnnefjaður, munnstór og virtust varirnar sjaldan koma saman og skein jafnan í framtennur, stórar. Þetta gaf andlitinu öllu fremur slapp- an og slapandi blæ. Augun voru gi'á- blá, lítil og lágu innarlega, hann lygndi oftast augunum, og laut höfði, er hann talaði. Óræktarlegt og ritju- legt alskegg var í toppum um höku og vanga. Hann talaði oftast afarhægt, málrómurinn veikur og þvoglulegur, og rann löngum slefa niður í skegg- ið, er hann sagði frá hinum mestu hreystiverkum sínum. Þegar hann heyrði aðra segja sögur af afrekum nranna, brást það varla, að Jón hafði á takteinum sögur af sjálfum sér, er tóku hinum sögunum langt fram. Lygndi liann þá augunum og lá í móki með sigurbros á vör, er sögunni lauk. En öll persónan var liin mesta and- stæða við afrekin sem sögurnar greindu frá. Eflaust hefur Jón glöggt fundið hve lítið álit menn höfðu á getu hans og kröftum. Sögur hans voru honum nauðsynlegt mótvægi gegn aðkasti manna og lítilsvirðingu. Þetta var kallað mont, en var raunar forðabúr lians til sjálfsvarnar. Oft mundi lítið hafa orðið úr Jóni, án þe&sa sjálfs- trausts. Geta hans og aflsmunir voru smávægi. En reyndin var sú, að hann afkastaði meiru en orðið hefði ef hann hefði ekki haft hærri hugmynd urn krafta sína og hæfni, en allir aðrir. Hér fara á eftir nokkrar af sögum Jóns. IV. 1. „Þegar ég var strákur á Björgum, klifraði ég oft um öll björgin í Víkna- fjöllum að safna eggjum. — Engin silla í björgunum var mér ófær. Og þetta byrjaði ég meðan ég var svo lít- ill að ég náði ekki upp í eyrun á mér“. 2. „Þegar ég var ungur eignaðist ég ágæt eikarskíði, smíðuð af Jóhannesi Bessasyni á Skarði. Hann vissi hvað mér kom. Þau voru svo þung að eng- inn gat notað þau nema ég, og ég hef heldur engin önnur skíði getað notað. Marga svaðilförina hef ég far- ið á þeim skíðum. Einu sinni, þegar ég var á Halldórs- stöðum, hjá sr. Jóni Austmann, þurfti prestur nauðsynlega að koma bréfi austur yfir Skjálfandafljót. Fljótið var talið ófært hverri skepnu, nema fuglinum fljúgandi. Það rann alls staðar í breiðum kolgrænum ál milli höfuðísa, og hefði fleygt ferjumanni eins og laufblaði. En prestur vissi að ég var ekki uppnæmur fyrir öllu, og spyr hvort ég sjái nokkur ráð. „Lof mér að fá bréfið“, segi ég. Piltar voru heldur liissa Jregar ég stefndi á skíð- um út og upp fja.ll, þegar fara átti austur yfir fljót. Ég skeytti engu þó piltar hlæju, en fór upp á brún Valla- fjalls, þar sem það er liæst, og renndi mér niður, og jók ferðina með því að ýta mér áfram með stafnum. Ferðin á mér var líka svo mikil, að ég sveif álinn í fljótinu, 18 álna breiðan. Aldrei sá ég neitt frá mér fyrir mjall- rokinu, fyrr en ég stanzaði loksins upp við heiðarbrún hinu megin. Lengi um veturinn var glerháll svell- bunki á bökkunum og í brekkunum að austan vegna þess hve fljótið rauk upp þar sem ég sveif yfir það“. 3. „Einu sinni hef ég farið hálf glæfralega yfir fljótið. Það var að vetrarlagi, þegar ég var á Mýri. Ég Jón méni úttrœður_ Teikning eftir þýzkan listamann. SAMVINNAN 17

x

Samvinnan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.