Samvinnan


Samvinnan - 01.07.1957, Síða 18

Samvinnan - 01.07.1957, Síða 18
vissi að húsbóndinn þurfti að ná yfir að Tungu. En hann lét á engu bera og taldi fljótið bráðófært alla vega, jafnvel fyrir mig. Þó vissi hann að ég mundi aldrei frá snúa og frernur fara mér að voða, en að reyna eigi að komast yfir. Samt komst ég nú að þessu og fer ofan að fljóti. Leizt mér ekki vel á. Skarir voru með bökkum, en áll í miðju svo breiður, að jafnvel mér var ofætlun að stökkva. Á einum stað var þó hraunsteinsnibba í miðj- um ál, en 8 álna stökk beggja vegna, yfir kaststrengi. Ég réðist til að stökkva yfir á stein- inn. En hart var nú viðbrugðið, og þegar ég stökk seinna stökkið af steinnibbunni að austurskör, höfðu allir þvengir slitnað af skónurn, sem snerti við steininum, og skórinn orðið eftir. Ég fann þetta á fluginu, spyrnti mér til baka af skörinni, kom með fótinn ofan í skóinn og tók hann með. Ég vissi að þetta var glannalegt, en mér þótti ekki gott að ganga á sokkn- um yfir Stórutunguhraun“. 4. „Ég fór einu sinni sem oftar í eftirleit á Framdali, þegar komið var langt fram á vetur. í þetta sinn tók ég með mér tvo röska nrenn, því lík- ur voru til þess að margt fé finndist. Hélt ég að það mundi verða óhætt, því útlit var gott með veður og færi. Annars gat ég sjaldan haft aðra með mér í eftirleitum, því fáir eða engir gátu fylgt mér eftir. Þegar kom syðst í afréttinn, skipti heldur um veður. Það gerði vestanbyl með ógurlegu frosti svo hvassan, að ég hélt að menn- irnir mundu fjúka út úr höndunum á mér. Ég hafði ekki önnur ráð en að grafa okkur niður með barði í snjó- skafl. Um nóttina kyrrði, en frostið óx ennþá. Við ætluðum að fara að borða nestið, en piltarnir unnu ekkert á því fyrir frosti. Ég braut vasahnífinn minn í smérbitanum. Nú fóru pilt- arnir að skjálfa og berja sér. Sjálfur tók ég mitt nesti og bruddi það, Nestisskjóður hinna setti ég í hand- arkrika mína. Mér hitnaði svo af á- tökunum við að bryðja frosið nestið, að ég var allur í einu svitabaði. Þegar piltarnir komu aftur var nestið þeirra orðið margþítt og glóðvolgt. Þeir borðuðu, og við lögðum síðan af stað.“ 5. „Einu sinni fórum við þrír sam- an í fjárleit, suður í Eljótsdal. Sáu þá piltarnir, sem með mér voru, hvannir nokkrar á klettasillu. Þá langaði í hvannarætur, og renndu sér og stukku niður á silluna, án þess að at- huga að þeim var hvergi fær leið til baka. Þeir vissu að ég varð aldrei ráðalaus og báðu mig að hjálpa sér. Ég stökk niður til þeirra, lét þá klifra upp á axlirnar á mér, og þaðan gátu þeir náð upp á klettabrúnina. Þá átti ég eftir að koniast upp. Ég hafði að vísu aldrei áður æft hástökk, en datt nú í hug að reyna. Það tókst. í fyrsta stökki stökk ég svo liátt að piltarnir náðu í háið á mér og dógu nrig upp“. 6. Einu sinni gróf í fæti á Jóni. Læknis var vitjað og skar hann í fót- inn. Hann kvað Jón mundu verða haltan. „Tókstu nokkuð neðan af“, spyr Jón. „Ekki verður Jón haltur, meðan báðir fætur eru jafnlangir". 7. Tungnahylur heitir í Skjálf- andafljóti, skammt ofan við ósa Mjóadalsár, neðan við Mýri í Bárðar- dal. Hylurinn er mjög djúpur, en mjór og lygn. Þar leggur fljótið fljótt þegar frystir, en oftast er sá ís skamm- ær. Eitt sinn var Jón varaður við því að ganga yfir á Tungnahyl, ísinn væri á förum. Þá kom þessi saga: „Ó, ég þekki mig nú í honum Tungnahyl. Ég hefi þráfaldlega skrið- ið undir hylinn eftir botninum. Ég drakk það í mig með móðurmjólk- inni að hræðast aldrei vatn, því hann faðir minn fór hvert vatn þar hann kom að því á hundasundi, og var svo grunnsyndur að aldrei blotnaði bóka- skjóðan á baki hans“. 8. „Þegar ég var sauðamaður hjá Jónasi á Lundarbrekku, átti hann einu sinni marga sauði hníflótta. Þeir voru mestu ófriðarkragar, og voru sí- fellt að stangast og berjast. Þráfald- lega kom það fyrir, að ég fann þá liggjandi, tvo og tvo, krækta saman á hníflunum. Ég tók mig því til dag einn og tók alla þá hníflóttu, og beygði með höndunum hníflana svo þeir lögðust aftur á hnakkann. Jón- asi þótti sauðirnir skrýtnir, en þakk- aði mér fyrir“. 9. „Einu sinni var ég á ferð með öðrum manni frá Stórutungu í Bjarnastaði. Þá var hörkufrost og mikil svellalög. Ég var á undan sam- ferðamanninum að vanda. Á einum stað skrikaði mér fótur á miklum svellbunka. Ég rann þar fram af þrí- tugum hamri niður í Svartá, þar sem hún féll í kaststreng milli skara. Á fallinu mundi ég eftir því að ég hafði bókapakka í barminum. Nú þótti nrér ekki gott að bleyta bækurn- ar, tók af mér vettlinginn, hneppti frá mér úlpunni, og lagði bækurnar á sillu í berginu. Þetta varð mér til lífs. Strengurinn tók mig auðvitað. En rétt þegar straumurinn var að bera mig undir ísinn, gat ég slett vettlingn- um, sem ég hélt á í hendinni, upp á skörina. Frostið var svo mikið, að vettlingurinn fraus fastur á auga- bragði, og ég gat dregið mig upp. Ég klifraði nú í standbergið, þótt hált væri, tók bækur mínar, og hélt út f Bjarnarstaði, svo sem ekkert væri. Þá lá allt fólkið grátandi inni í baðstofu. Stúlkurnar hrópuðu: „Ó, ó, hann Jonni er dáinn“. „Ónei“, sagði ég, þegar ég kom í dyrnar. „Ennþá lifir Jonni“. Maðurinn, sem á eftir mér fór, hafði hlaupið í ofsahræðslu til bæjar og sagt að ég hefði hrapað í ána“. Ekki skulu sagðar fleiri Ménasögur að sinni. Sitthvað nrundi þó koma úr krafsinu, ef tóm ynnist að heimsækja roskið fólk í Bárðardal. Þess skal get- ið, að sumar sögurnar ganga í mis- jöfnum útgáfum, og verður svo ætíð um það sem geymist á vörum fólks. Ég hef valið þær sagnamyndirnar, sem fyllstar voru og ég taldi bezt í anda Jóns gamla. Hér fylgir með ljósmynd af Jóni og einum af hundum hans. Einnig teikning eftir þýzkan málara, Adolf Schroter, gerð af Jóni áttræðum. Yztafelli, 2. febrúar 1956. — Jón! 18 SAMVINNAN

x

Samvinnan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.